Forsíðufréttir

Ljúfir tónar í Háskólanum í Reykjavík

26.3.2010

Ljúfir tónar bárust um ganga Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík fyrir helgi þegar söngelskur hópur nemenda við Háteigsskóla söng fyrir gesti og gangandi. Gospelkór HR tók síðan undir með börnunum.

Gospelkór HR stóð fyrir tónleikunum og vildi með þeim lífga upp á daginn. Geir Ólafsson söngvari steig líka á svið og sömuleiðis rapparinn Ástþór Óðinn.

Gospelkór Háskólans í Reykjavík var stofnaður haustið 2009. Á þeim stutta tíma sem kórinn hefur starfað hefur hann margsinnis komið fram opinberlega, svo sem í Árbæjarkirkju, hjá Hjálpræðishernum, á Café Rosenberg og nú síðast á jólatónleikum í Iðnó. Kórstjóri er Elín Halldórsdóttir óperusöngkona.

Barnakór í HR


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica