Forsíðufréttir

Málþing um íþróttir í framhaldsskólum - upptökur af fyrirlestrum

6.4.2010

3. mars síðastliðinn hélt Íþróttakennarafélag Íslands málþing um íþróttir í framhaldsskólum undir yfirskriftinni Heilbrigð sál í hraustum líkama.

Nú hefur verið tekið saman myndband með fyrirlestrum sem fluttir voru á málþinginu.

Fyrirlesarar og erindi þeirra voru eftirfarandi:

  • Guðbrandur Stefánsson formaður ÍKFÍ og Þórdís Lilja Gísladóttir sviðsstjóri íþróttafræðisviðs HR: Fundarsetning
  • Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra: Ávarp
  • Þórólfur Þórlindsson: Heilbrigð sál í hraustum líkama – hefur það eitthvað með skólamál að gera?
  • Jóhanna María Eyjólfsdóttir sérfræðingur í Mennta- og menningamálaráðuneytinu: Íþróttavakning í framhaldsskólum
  • Björg Pétursdóttir sérfræðingur í Mennta- og menningamálaráðuneytinu: Framhaldsskóli framtíðarinnar
  • Jóhanna Margrét Gísladóttir fyrrum nemandi í Versló og Kristína Björk Arnórsdóttir fyrrum nemandi í BHS: Upplifun nemenda af íþróttakennslu
  • Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur: Sterk bein alla ævi
  • Jón Már Héðinsson skólameistari MA: Ábyrgð á hreyfingu og heilbrigði
  • Halla Karen Kristjánsdóttir íþróttakennari: Íþróttakennsla í framhaldsskólum
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson dósent við HÍ: Heilsa og lífsstíll í framhaldsskóla
  • Ingólfur Sveinsson geðlæknir: Fagnaðarboðskapur líkamsræktar


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica