Forsíðufréttir

Mikilvægt að auka traust í samfélaginu

7.4.2010

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra sagði í ávarpi sínu á hádegismálstofu Háskólans í Reykjavík og Almannaheilla í dag að mikilvægt væri að auka traust í samfélaginu og að setning siðareglna gæti verið lóð á þær vogarskálar.

Þátttaka á málstofunni var góð en yfirskrift hennar var: Þriðji geirinn: Siðlegir starfshættir og ábyrgð stjórna almannaheillasamtaka.

Auk Rögnu fluttu erindi þau Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur við lagadeild HR, Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR, og Eva Þengilsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar HR og varaformaður Almannaheilla.

Stefán Einar sagði meðal annars í erindi sínu að mjög mikil ábyrgð hvíldi á frjálsum félagasamtökum að vinna að framgangi almannahagsmuna. Siðareglur slíkra samtaka hlytu því að endurspegla það að einhverju leyti. Þær væru þó ekki ávísun á að frjáls félagasamtök gætu ekki valdið skaða heldur væru þær fyrst og fremst viðleitni til að tryggja að þau risu undir hlutverki sínu.

Þorkell sagði meðal annars að ábyrgð stjórna almannaheillasamtaka væri síst minni en hlutafélaga því verið væri að fjalla um mikilvæg samfélagsleg verkefni og ráðstafa fjármunum sem stjórninni og stjórnendum væri treyst fyrir.

Hann sagði enn fremur að allar stjórnir ættu að setja sér starfsreglur og að þær ættu að vera virkar á milli stjórnarfunda. Hann sagði almennt um hlutverk stjórna að stjórnarmenn áttuðu sig oft ekki á sinni ábyrgð og að þeir hefðu ekki þurft að taka sitt hlutverk alvarlega og axla ábyrgð.

Eva fór að síðustu yfir drög að siðareglum Almannaheilla, tilgang slíkra reglna og ábyrgð gagnvart almenningi fjölmiðlum og samfélagi.

Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla, var fundarstjóri.

Almannaheill fundur

Almannaheill fundurAlmannaheill fundur


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica