Samevrópsk orkustefna feli í sér tækifæri fyrir Ísland
Samevrópsk orkustefna var til umfjöllunar á hádegisfundi lagadeildar Háskólans í Reykjavík í dag. Erindi flutti dr. Dirk Buschle, lögfræðilegur ráðgjafi á skrifstofu orkusamnings Evrópusambandsins og Balkanríkjanna (Energy Communy) í Vínarborg.
Að erindi loknu svaraði hann fyrirspurnum úr sal.
Dr. Dirk Buschle dró saman á áhugaverðan og skemmtilegan hátt grundvallarþætti orkustefnu Evrópusambandsins. Hann lýsti auknu vægi ESB við mótun orkustefnu og orkulöggjafar sem næði ekki eingöngu til ríkja sambandsins heldur einnig ríkja utan þess, þ.á.m. til Íslands á grundvelli EES-samningsins.
Taldi hann líklegt að þróunin yrði í átt að frekari samræmingu á þessu sviði, einkum hvað snertir innri markaðinn og notkun hreinna og endurnýjanlegra orkugjafa. Tækifærin fyrir Ísland væru mörg, einkum þegar kæmi að nýjum reglum sem heimila samvinnu milli ríkja við að ná settum markmiðum um hlutfall endurnýjanlegrar orku.
Fundarstjóri var Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar.



