Hugbúnaður flokki lög sjálfvirkt eftir hljómi þeirra
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) og D3, sem rekur tónlistarvefinn tonlist.is, hafa gert með sér samstarfssamning um rannsóknir á flokkun laga eftir innihaldi þeirra.
Rannsóknarverkefnið, sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði Háskólans í Reykjavík, verður unnið af Hauki Pálmasyni, meistaranema í tölvunarfræði í HR, undir umsjón dr. Björns Þórs Jónssonar, dósents við tölvunarfræðideild HR.
Björn Þór hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á hraðvirkri leit í stórum margmiðlunargagnagrunnum, svo sem í myndagrunnum, myndbandagrunnum og nú síðast í tónlistargrunnum.
Umrætt rannsóknarverkefni snýst um að beita þessum leitaraðferðum við flokkun á tónlist, til að auðvelda notendum leit eftir efnisflokkum þegar þeir eru að skoða tónlistarsafnið.
Almennt fer flokkun á tónlist í efnisflokka þannig fram að starfsmenn tónlistarvefja skrá inn flokkana handvirkt. Tölvunarfræðingar hafa hins vegar um nokkurt skeið rannsakað þann möguleika að hugbúnaður flokki lögin sjálfvirkt eftir hljómi þeirra. Hingað til hafa þessar rannsóknir þó eingöngu átt sér stað með gagnagrunnum sem innihalda tiltölulega fá lög. Samningur HR og D3 markar því tímamót, þar sem vísindamenn HR fá aðgang að allri íslenskri tónlist á tónlist.is eða meira en 50 þúsund lögum.
Gert er ráð fyrir að fyrsta áfanga verkefnisins ljúki um næstu áramót.

