Íslensk ungmenni eru mörg hver of feit en hafa þrátt fyrir það gott þol
Á milli fjórðungur og helmingur átján ára íslenskra nemenda í framhaldsskólum er mjög illa á sig kominn hvað holdafar varðar.
Þetta er ein helsta niðurstaða rannsóknar sem Erlingur Birgir Richardsson, stundakennari við kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík, gerði á haustmánuðum 2008 og í byrjun árs 2009.
Markmiðið var að kanna líkamlega heilsu 18 ára framhaldsskólanema.
Rannsóknina gerði Erlingur fyrir meistararitgerð sína við Háskóla Íslands. Erlingur gerði grein fyrir niðurstöðunum á hádegisfundi kennslufræði- og lýðheilsudeildar í húsakynnum HR við Ofanleiti í dag.
Í niðurstöðunum kemur fram að 23,3% nemenda eru skilgreind sem of þung eða feit samkvæmt BMI stuðli og að 50,8% nemenda eru með hátt hlutfall líkamsfitu.
Þrátt fyrir þetta eru nemendurnir með ágætt þol því 78-90% eru með þol í meðallagi og hærra. „Þannig að framhaldsskólanemar eru feitir en í góðu formi,“ sagði Erlingur.
Offita er sjötta helsta heilbrigðisvandamál heimsins í dag og slæm áhrif hennar á heilsu eru margþætt. Í Evrópu má rekja eitt af hverjum 13 dauðsföllum til offitu.
Erlingur sagði í erindi sínu að það væri áhyggjuefni hve margir nemendur hér væru of þungir og hreyfðu sig lítið. „Þau börn og unglingar sem venjast snemma á lífsleiðinni á að hreyfa sig reglulega, eru með gott þol og borða hollan mat auka líkur á betri heilsu á síðari æviskeiðum.“

