Hagnýtt nám í markþjálfun
Opni háskólinn hóf í gær hagnýtt nám í markþjálfun (executive coaching). Námið miðar að því að leggja grunn að alþjóðlegri ACC vottun nemenda (Associate Certified Coach).
Er þetta í fyrsta skipti hér á landi sem markþjálfun er í boði á háskólastigi.
Nám í markþjálfun gefur þátttakendum tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína, laða fram það besta í starfsfólki, teymum og skipulagsheildum og bæta árangur í lífi og starfi.
Alls fimmtán manns eru skráðir í námið og komust færri að en vildu. Hópurinn samanstendur af öflugum einstaklingum með víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði viðskipta, mannauðsmála, leiðtogafræða og sálfræði.
Námsbrautin er kennd í samstarfi við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR og CCUI.
Nánari upplýsingar um námsbraut í markþjálfun má finna hér.

