Forsíðufréttir

Um fjörutíu skólastjórnendur sækja HR heim

16.4.2010

Um fjörutíu skjólastjórnendur á höfuðborgarsvæðinu sóttu heim Háskólann í Reykjavík í dag. John B. Vander Sande, konrektor HR, tók á móti hópnum, og flutti stutt ávarp.

Síðan fluttu sérfræðingar kennslufræði- og lýðheilsudeildar HR örstutt erindi um rannsóknir sínar á ungmennum.

Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, flutti erindi um líðan ungs fólks á tímum efnahagsþrenginga. Þorlákur Karlsson, deildarforseti við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, flutti erindi um skapandi skrif ungmenna.

Þá flutti Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, erindi um árangur af forvarnarstarfi meðal unglinga á Íslandi.

Að lokum flutti erindi Sigríður Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður Stúdentaþjónustu HR. Erindið bar yfirskriftina Sykur fyrir sálina.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica