Forsíðufréttir

Vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi

24.4.2010

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis má finna mikilvægar vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi í rekstri fjármálastofnana og tengdra aðila.

Þetta kom meðal annars fram í erindi Sigurðar Tómasar Magnússonar, prófessors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu um rannsóknarskýrsluna sem fram fór í HR í dag.

Sigurður Tómas tók fram að skýrslan hefði þó ekki að geyma sönnunargögn sem myndu duga til sakfellingar fyrir dómi. Skýrslan gæti á hinn bóginn hjálpað til við öflun sönnunargagna.

Ráðstefnan var haldin í samstarfi Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Hún hófst klukkan tíu í morgun og hefur staðið yfir í allan dag.

Átján fræðimenn hafa á henni flutt erindi á sex málstofum en í hverri þeirra var fjallað um afmarkaðan þátt efnahagshrunsins.

Tilgangur ráðstefnunnar var að halda áfram umræðu og greiningu rannsóknarskýrslu Alþingis.

Ráðstefnan verður flutt norður á land á morgun, sunnudag, en þar mun hún fara fram í húsakynnum Háskólans á Akureyri.

rannsoknarskyrsluradstefna

rannsoknarskyrsluradstefna

rannsoknarskyrsluradstefna

 

rannsóknarskýslu ráðstefna


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica