Forsíðufréttir
Erindi á ráðstefnu um rannsóknarskýrslu Alþingis
Ráðstefna Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri um rannsóknarskýrslu Alþingis sem haldin var um helgina var vel sótt en hún fór fyrst fram í húsakynnum HR við Nauthólsvík og síðan í HA.
Yfir sjötíu manns sóttu ráðstefnuna í Reykjavík og um fjörutíu manns sóttu hana fyrir norðan. Ráðstefnunni var skipt í sex málstofur og í hverri þeirra var fjallað um afmarkaðan þátt efnahagshrunsins.
Þeir sem ekki höfðu tök á því að mæta geta nálgast erindi og glærur fyrirlesara hér.





