Vel sóttur framboðsfundur í Háskólanum í Reykjavík
Oddvitar framboðslistanna átta sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í vor mættust á hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík í dag. Fundurinn var mjög vel sóttur og var fullt út úr dyrum.
Frambjóðendur fóru á fundinum yfir helstu stefnumál sín og vakti athygli þegar Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, lýsti því yfir að hann hygðist draga framboð sitt til baka. Þögn sló á fundarmenn en svo bætti hann við að þetta væri „djók“.
Tveir oddvitar hafa sett framboðsræður sínar á netið og má finna grein Baldvins Jónssonar, oddvita Reykjavíkurframboðsins hér og grein Einars Skúlasonar, oddvita Framsóknarflokksins, hér.
Mbl sjónvarp heyrði í fundargestum eftir fundinn og má sjá umfjöllunina hér. Ummæli Jóns Gnarr vöktu einnig athygli netmiðlana, eins og sjá má hér, hér og hér.
Þá var fjallað um fundinn í Síðdegisútvarpi Rásar 2, fréttum RÚV, Speglinum, fréttum Sjónvarpsins og fréttum Stöðvar 2.
Þá var umfjöllun um fundinn í Fréttablaðinu og í Morgunblaðinu.

