Orkusparnaður með nýjum búnaði í nýbyggingu HR
Hægt er að spara almenna ljósanotkun í kennslustofum Háskólans í Reykjavík um rúmlega 50-70% með stjórnbúnaði sem settur hefur verið upp í nýbyggingu skólans í Vatnsmýri. Búnaðurinn er fyrir hendi í öllum 37 kennslustofum, 5 málstofum og 2 fundarsölum skólans.
Crestron stjórnbúnaðurinn stýrir ljósa- og orkunotkun í kennslu- og fundarrými skólans. Hann slekkur á myndvörpum þegar þeir eru ekki lengur í notkun en slíkt dregur úr orkunotkun um allt að 50% miðað við 40 kennslustundir á viku. Þá dregur búnaðurinn úr orkunotkun um rúmlega 60% miðað við sömu forsendur.
Stjórnbúnaðurinn stuðlar einnig að aukinni endingu skjávarpa og eykur almennt rekstrarhagræði byggingarinnar þar sem ljós eru ekki kveikt í kennslustofum þegar kennsla er ekki í gangi. Þá hafa tæknimenn skólans aukið yfirsýn yfir þann búnað sem er í notkun í kennslustofum og geta brugðist fyrr við vegna viðhalds og bilana.
Allir lampar byggingarinnar eru nettengdir og stjórnað frá miðlægu ljósastýrikerfi. Með upplýsingum frá dagsbirtuskynjara er hægt að stýra birtustigi lampa í kennslustofum og á gögnum í samræmi við náttúrulega birtu í byggingum. Í gegnum ljósastýrikerfið er jafnframt öflugt viðhaldskerfi sem fylgist með stöðu neyðarlampa og brennslutíma pera og tilkynnir um peruskipti.
Fyrirtækið Sense annaðist uppsetningu á stjórnbúnaði, myndvörpum og hljóðkerfi skólans, en það er tengt í gegnum netkerfi skólans. Sú leið skapar mikið hagræði því ekki þarf að leggja hljóðstrengi um alla bygginguna. Þess í stað fara samskipt um netið sem hægt er að tengja við öll svæði skólans. Verkfræðiráðgjafarfyrirtækið Verkís sá um uppsetningu ljósakerfisins og tengingu þess við stjórnbúnaðinn.

