Viðskiptafræðinemum í starfsnámi boðið framtíðarstarf
Starfsnámi viðskiptafræðinema á lokaári til BSc-prófs við Háskólann í Reykjavík er nýlokið og var um helmingi þeirra, sem áhuga höfðu, boðið framtíðarstarf. Markmið starfsnámsins er að brúa bilið milli atvinnulífs og háskóla og gefa nemendum kost á að nýta þekkinguna sína á því svið sem þeir helst hafa áhuga á.
Starfsnámið er valnámskeið í viðskiptadeild HR og er það metið til 6 ECTS eininga. Nemendur starfa þá hjá fyrirtæki eða stofnun í eitt misseri og verja til þess jafn miklum tíma og hvert námskeið tæki. Stofnanirnar eða fyrirtækin eru millistór eða stór og snerta ólíkar greinar atvinnulífsins. Um 30 viðskiptafræðinemar luku starfsnámi á þessu skólaári.
Starfsnámið var í fyrsta sinn boðið haustið 2009 og vegna þess hversu vel það heppnaðist var ákveðið að endurtaka leikinn í ár. Verið er að undarbúa starfsnám næsta haust og er eftirspurn nemenda og fyrirtækja mikil. Starfsnámið hefur því þegar sannað gildi sitt.
Þröstur Olaf Sigurjónsson, lektor við viðskiptadeild HR, sér um starfsnámið.

