Rafbílaleigu ýtt úr vör á mánudag með prufukeyrslu ráðherra
Rafbílaleigu, fyrir starfsmenn og nemendur Háskólans í Reykjavík, undir heitinu Forskot verður ýtt úr vör með formlegri athöfn mánudaginn 17. maí. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tekur forskot á sæluna kl. 13.15 og fær fyrsta bílinn lánaðann til að skjótast á fund í næsta nágrenni.
Með rafbílaleigunni verður nemendum og kennurum gert kleift að leigja rafbíla til að sinna óvæntum erindum eða fundum yfir daginn. Rafbílaleigan er hluti af rannsóknarverkefni tækni- og verkfræðideildar HR og er markmiðið að kanna forsendur rafvæðingar einkabíla og almenningssamgangna í Reykjavík.
Ef vel tekst til gæti rafbílaleigan dregið úr þörf starfsmanna og nemenda til þess að koma á einkabílum í skólann og þar með dregið úr notkun bílastæða og álagi á umferðarmannvirki. Þá gæti hún haft jákvæð áhrif á umhverfið. Síðast en ekki síst er tilgangurinn sá að vekja athygli á nýjum umhverfisvænum samgöngumáta.
Fyrst í stað verða leigubílarnir tveir, það eru bílar sem nemendur tækni- og verkfræðideildar hafa breytt úr bensínbílum í rafbíla. Í stað þess að fylla þá af bensíni er þeim einfaldlega stungið í samband líkt og gert er með farsíma. Tækni- og verkfræðinemar HR hafa einnig í samtarfi við tölvunarfræðideild HR þróað rafrænt leigukerfi og vef fyrir verkefnið á slóðinni: forskot.is. Það er gott dæmi um hvernig einstakar deildir háskólans geta unnið saman.
Verkefnið er styrkt af umhverfis- og orkurannsóknarsjóði Orkuveitu Reykjavíkur og er stýrt af Dr. Hlyni Stefánssyni, lektor við tækni- og verkfræðideild HR. Þá er rafbílaleigan rekin í samstarfi við Hertz bílaleigu sem sér meðal annars um þrif, reglubundið eftirlit og viðhald.
Í tengslum við rafbílaleiguna verður hjólaleiga einnig tekin í gagnið fyrir nemendur og kennara með það sömuleiðis fyrir augum að stuðla að umhverfisvænum samgöngum.
Við athöfnina á mánudag flytur Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, stutt ávarp og Bergur Dan Gunnarsson útskriftarnemi í rekstrarverkfræði HR útskýrir verkefnið í stuttu máli. Þá prufukeyrir menntamálaráðherra fyrsta rafleigubílinn.
Að því búnu hefst uppskeruhátíð tækni- og verkfræðinema við Háskólann í Reykjavík, tæknidagurinn, en þar gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér afrakstur verklegra námskeiða og það öfluga starf sem unnið er innan deildarinnar. Hátíðinni lýkur kl. 16 með grillveislu.

