Forsíðufréttir

Þrjár viðskiptahugmyndir tilnefndar til Guðfinnuverðlauna

14.5.2010

Myndatökur af ferðamönnum í Leifsstöð með íslenskt eldgos í baksýn, þjónustufyrirtæki sem breytir bensínbíl í metanbíl á hagkvæman hátt og flokkun sjónvarpsefnis á netinu eftir áhugasviði hvers og eins, eru viðskiptahugmyndir nemenda við Háskólann í Reykjavík sem tilnefndar voru til Guðfinnuverðlauna í dag.

Tilnefningarnar voru tilkynntar á uppskeruhátíð nemenda á námskeiði um nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Úrslitin verða kynnt í haust og er verðlaunaféð 400 þúsund krónur. Því er ætlað að veita góðum hugmyndum brautargengi.

Alls 253 nemendur á fyrsta ári við HR hafa setið fyrrgreint námskeið undanfarnar þrjár vikur en markmið þess er að ýta undir skapandi hugsun og kenna nemendum að koma fyrirtækjum á legg. Á námskeiðinu er nemendum skipt í fjögurra til sex manna hópa þar sem stúdentar úr ólíkum deildum vinna saman að því að þróa nýja viðskiptahugmynd. Alls 55 fjölbreyttar hugmyndir litu þar dagsins ljós.

Námskeiðið er haldið í samvinnu Háskólans í Reykjavík, frumkvöðlasetursins Innovit og Klaks, nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins. Klakið verðlaunaði fimm verkefni námskeiðsins sérstaklega í dag og fá hugmyndasmiðirnir aðstöðu og stuðning í viðskiptasmiðju þess í sumar svo þeir geti hrint hugmyndum sínum í framkvæmd.

Verðlaunaverkefnin fimm eru: Melona.is sem hefur það að markmiði að gera niðurhal af netinu löglegt. Sif, sem gengur út á að selja gömul veiðarfæri til Noregs. Tímo, sem gengur út á miðlæga tímapöntun á netinu, hjá til dæmis hárgreiðslumeistara eða bifvélavirkja. Húsnæðisleitarinn, forrit sem hjálpar fólki að velja besta staðinn til að búa á miðað við þarfir hvers og eins. Og að lokum Streamplicity, sem leitast við að flokka sjónvarpsefni á netinu eftir áhugasviði hvers og eins. Síðastnefnda verkefnið var einnig tilnefnt til Guðfinnuverðlaunanna.

Guðfinnuverðlaunin bera nafn Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors HR. Stofnað var til þeirra árið 2007 með það að markmiði styðja við frumkvöðlastarf og nýsköpun nemenda við HR.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica