Forsíðufréttir

Framúrskarandi verkefni hljóta viðurkenningu TFÍ

17.5.2010

Bergþór Þormóðsson, formaður Tæknifræðingafélags Íslands (TFÍ), afhenti nemendum í tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, viðurkenningarskjöl fyrir framúrskarandi lokaverkefni, við hátíðlega athöfn á tæknidegi HR.

Fimm verkefni hlutu viðurkenningu félagsins að þessu sinni og voru þau unnin á árunum 2008 og 2009.

Stjórn TFÍ velur verkefnin út frá því að í þeim sé augljós nýsköpunarþáttur og að þau séu líkleg til að þjóna íslensku atvinnulífi.

Eftirfarandi verkefni og nemendur hlutu viðurkenningu TFÍ:

Varmadæla hitaveitu í Vík í Mýrdal
Leifur Örn Leifsson byggingartæknifræði.

Áhrif skriðs í steypu við hönnun steyptra mannvirkja á Íslandi
Pálmi Þór Sævarsson byggingartæknifræði.

Hönnun og smíði á NoWay jafnvægishjóli
Stefán Þór Bjarnason, vél- og orkutæknifræði.
Valdimar Ómarsson, vél- og orkutæknifræði.

Hönnun og smíði á litlum tromlumótor
Hafþór Eiríksson, vél- og orkutæknifræði.

Breyting bensínbíls í rafbíl
Guðjón Hugberg Björnsson, rafmagnstæknifræði.
Hjörtur Már Gestsson, vél- og orkutæknifræði.
Hrafn Leó Guðjónson, rafmagnstæknifræði.

Háskólinn í Reykjavík óskar þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.

tæknidagur

tæknidagur

tæknidagur

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica