Forsíðufréttir

Fyrirlestraröð á vegum tækni- og verkfræðideildar HR

19.5.2010

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir fyrirlestraröð í hádeginu dagana 20. til 28. maí. Tilefnið er að í byrjun árs veittu Samtök iðnaðarins (SI) háskólanum rausnarlegan styrk til að þróa kennslu í hagnýtum námskeiðum.

Á hádegisfyrirlestrunum verða kynnt undir yfirskriftinni „Verkin tala“ ýmis áhugaverð verkefni sem nemendur í verkfræði og tæknifræði unnu á námskeiðum sem nutu styrks SI.

Erindin verða flutt frá kl. 12.00 til 12.30 alla dagana.

DAGSKRÁ:

Fimmtudagur 20. maí

  • TÆKNIN ER HEIT – Hagnýt varmafræði, orka og vélar*

William S. Harvey

Stofa: V1.12 Orkutæknistofa

Þriðjudagur 25. maí

  • SAMSPIL Í HÖNNUN – Arkitektúr og burðarvirkjahönnun*

Björn Guðbrandsson

Stofa: V1.02 BETELGÁS

Miðvikudagur 26. maí

  • RAFMÖGNUÐ ENDURHÆFING – Raförvun við endurhæfingu fingra

Arna Óskarsdóttir og Dröfn Svanbjörnsdóttir

Stofa: V1.02 BETELGÁS

Fimmtudagur 27. maí

  • UMHVERFISVÆNT FORSKOT – Samnýting rafbíla við HR*

Hlynur Stefánsson

Stofa: V1.12 Orkutæknistofa

Föstudagur 28. maí

  • Á KAFI Í TÆKNINNI – Sjálfvirkur kafbátur*

Jón Guðnason

Stofa: V2.09 Rafeinda- og stýritæknistofa

ALLIR VELKOMNIR!

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica