Viðurkenning frá ESB: Gott starfsumhverfi fyrir rannsóknarfólk
Háskólinn í Reykjavík hefur fengið viðurkenningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir að vera vinnustaður sem fylgir viðmiðum ESB um gott starfsumhverfi fyrir rannsóknarfólk. HR er fyrsti háskólinn á Íslandi til að hljóta þessa viðurkenningu.
Viðurkenningin byggir á stefnu ESB sem sett var árið 2005 og kemur fram í skjölum sem nefnast: Code of Conduct for the Recruitment of Researchers og European Charter for Researchers. Stefnan hefur verið undirrituð af fjölmörgum háskólum og innleiðing hennar er hafin í mörgum þeirra. Allir íslensku háskólarnir undirrituðu stefnuna árið 2007 en HR er þeirra fyrstur til að innleiða hana með formlegum hætti.
Með því hefur Háskólinn í Reykjavík skuldbundið sig til að aðlaga mannauðsstefnu og starfsumhverfi rannsóknarfólks við HR að stefnu Evrópusambandsins á þessu sviði. Þannig vill skólinn styrkja stefnumótun sína um að verða rannsóknarháskóli í fremstu röð og bæta einnig nám nemenda, enda eru sterkar rannsóknir mikilvæg næring fyrir kennsluna og námið.
Vinnuhópur innan Háskólans í Reykjavík lauk fyrr á árinu þeirri greiningarvinnu sem nauðsynleg er sem fyrsta skref í innleiðingu stefnunnar. Í framhaldi af því sótti HR formlega um viðurkenningu á þessu verkefni og barst hún í maí 2010.
Morgunblaðið og mbl.is fluttu fréttir af þessari viðurkenningu.

