HR stefnir að rannsóknarsamstarfi við Íþróttaháskólann í Köln
Fjórir starfsmenn Háskólans í Reykjavík heimsóttu nú í maí Íþróttaháskólann í Köln í Þýskalandi (Deutsche Sporthochschule Köln), eða þau Þórdís Gísladóttir, Þráinn Hafsteinsson, Margrét Jónsdóttir og Þorlákur Karlsson. Íþróttaháskólinn í Köln er einn stærsti og virtasti íþróttaháskóli í heimi.
Tilgangur heimsóknarinnar var að koma á samstarfi milli skólanna og kynna sér aðstöðu, kennslu og rannsóknir við skólann. Rektor skólans, Dr. Walter Tokarski, og forstöðumaður alþjóðaskrifstofu skólans, Dr. Gerard King, heimsóttu HR síðastliðið haust og kynntu sér aðstæður hér á landi.
Gerður hefur verið samstarfssamningur um nemenda- og kennaraskipti og unnið er að gagnkvæmum samskiptum í rannsóknum, þar sem gagnasafn Rannsókna og greiningar verður öflugt framlag af hálfu HR, svo og sterk tengsl íþróttafræðinnar í HR við íþróttahreyfinguna á Íslandi.
Ljóst er að mjög mikill fengur er að þessu samstarfi og strax í haust mun a.m.k. einn kennari frá skólanum í Köln kenna í íþróttafræðinni í HR.
Meðfylgjandi myndir eru teknar í glampandi sólskini í Köln þar sem þýskir starfsbræður báru HR-ingana á höndum sér. Síðasta myndin er af þeim Walter og Gerard í rigningu á Íslandi síðastliðið haust.




