Forsíðufréttir

HR-ingum gengur vel að fá vinnu

31.5.2010

Um 95% HR-inga voru þegar komin í vinnu eða fengu vinnu á innan við fjórum mánuðum frá útskrift úr Háskólanum í Reykjavík en um 1,5% hefur ekki tekist að finna vinnu. Þetta kemur fram  í Alumni-könnun sem skólinn lét nýverið gera meðal útskrifaðra HR-inga.

Þar kemur einnig fram að um 90% HR-inga voru þegar komin í vinnu eða fengu vinnu á innan við tveimur mánuðum frá útskrift.

Könnunin var send til þeirra sem útskrifast hafa frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 1999, Tækniháskóla Íslands (THÍ), Tækniskóla Íslands (TÍ) og Viðskiptaháskólanum í Reykjavík (VHR). Könnunin var gerð í gegnum tölvupóst dagana 21. apríl til 10. maí 2010.

Tæplega 41% þeirra sem brautskráðust á umræddu tímabili svöruðu könnuninni eða alls 1.429.

Í könnuninni var spurt út í ýmsa þætti, svo sem hag HR-inga á vinnumarkaði .

Í henni kemur fram að um 24% útskrifaðra HR-inga á vinnumarkaði starfa sem stjórnendur með mannaforráð og um 61% sem sérfræðingar.

Þá kemur fram að um 16% útskrifaðra nemenda hafi stofnað eða hafi átt þátt í stofnun nýs fyrirtækis, annað hvort meðan á námi stóð eða eftir að því lauk. Ekki er talin með stofnun eignarhaldsfélaga utan um minniháttar sjálfstæða atvinnustarfsemi.

Flestir svarenda sem eru í vinnu, starfa í einkageiranum eða tæplega 68%. Rúmlega 85% svarenda á vinnumarkaði segjast mjög ánægð eða frekar ánægð í núverandi starfi. Tæplega 10% segjast hvorki ánægð né óánægð.

Þegar spurt var hvers vegna HR, (áður THÍ, TÍ og VHR) hefðu orðið fyrir valinu, en hægt var að merkja við fleiri en einn möguleika, nefndu flestir atvinnumöguleika , gæði kennslu , persónulegt viðmót  og aðstöðu.

Morgunblaðið og mbl.is greindu frá könnuninni í dag.

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica