Forsíðufréttir

Aukin aðsókn að Háskólanum í Reykjavík - umsóknarfrestur framlengdur og nemendum fjölgað

Umsóknarfrestur framlengdur og nemendum fjölgað til að mæta þörfum atvinnulífsins

2.6.2010

Mikil aðsókn er að Háskólanum í Reykjavík, en umsóknum um nám við skólann fjölgaði milli ára. Mest varð fjölgunin í tæknigreinum en þar jókst fjöldi umsókna um 9% í heildina og yfir 20% í tölvunarfræðideild.

Þau skýru skilaboð hafa nú komið frá atvinnulífinu að uppbygging þekkingariðnaðar og framleiðslugreina á Íslandi kalli á mikla fjölgun tæknimenntaðra einstaklinga og því sé nauðsynlegt að fjölga til muna nemendum í tækninámi. Hafa Samtök iðnaðarins sent út áskorun þar sem framkvæmdastjóri samtakanna segir meðal annars:

Ég skora á Háskólann í Reykjavík, sem er stærsti skóli landsins á sviði verk- og tæknimenntunar á háskólastigi, sem og aðra háskóla með kennslu á þessu sviðum, að framlengja umsóknarfrest um skólavist fram í miðjan júní til þess að gefa sem flestum kost á að vega og meta kosti þess að setjast þar á skólabekk og leggja stund á verk- og tæknigreinar.

Til að styðja enn betur við framtíðaruppbyggingu íslensks atvinnulífs og efnahags þjóðarinnar hefur Háskólinn í Reykjavík því ákveðið að fjölga nemendum og framlengja umsóknarfrest til 10. júní og verða umsækjendur að hafa skilað fylgigögnum fyrir 15. júní.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica