Nemendur frumgreinanáms á Spáni
Spænskunám og starfskynning í Burgos á Spáni
Þessa dagana stunda tíu nemendur frumgreinanáms spænskunám í Háskólanum í Burgos á Spáni. Jafnframt eru þeir í starfskynningum.
Alþjóðasvið Háskólans í Reykjavík hlaut styrk frá Leonardo áætluninni á Íslandi til að styrkja nemendur í frumgreinanámi skólans til spænskunáms og námsferðir í fyrirtæki.
Nemendurnir búa hjá spænskum fjölskyldum í fjórar vikur og eru mjög ánægðir með allar móttökur á Spáni. Þetta er ómetanlegt tækifæri til að kynnast siðum og venjum annarra þjóða.
Fjallað var um dvöl þeirra í dagblaði í Burgos og myndin með þeirri frétt var tekin er þeir heimsóttu mjólkursamsöluna í Burgos. Sjá úrklippu úr Diario de Burgos (pdf)

