Tölvuleikurinn Path to Ares sigraði í tölvuleikjakeppni
Tölvuleikurinn Path to Ares sigraði í fyrstu árlegu tölvuleikjakeppni Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI, Icelandic Gaming Industry) en úrslitin voru kynnt í lok tölvuleikjadags IGI og Háskólans í Reykjavík um helgina. Sigurleikurinn fjallar um innrás geimvera og sá sem spilar leikinn tekur að sér hlutverk prófessors sem vaknar upp við það að verið sé að breyta honum í erfðafræðilegan hermann.
Alls ellefu hugmyndir bárust í keppnina frá tæplega þrjátíu aðilum.
Leikurinn Fly on the Wall fékk sérstök aukaverðlaun en í honum er sá sem spilar leikinn fluga sem reynir að lifa af í heimi karlmanns sem vill hafa snyrtilegt í kringum sig. Leikurinn gengur út á að annað hvort flugan eða maðurinn lifa af. Flugan þarf að safna bakteríum og vírusum til að gera manninn veikann og finna mat til að halda lífi.
Þá fengu þrjár hugmyndir að tölvuleikjum sérstök hvatningarverðlaun. Þær eru Preschool sem er safn leikja fyrir yngri börn. Music Missile sem er flug- og tónlistarleikur fyrir IPhone. Og að lokum The Adventures of the Blue Pigeon sem fjallar um ofurhetju sem býr í Westward Point.
Tölvuleikjadagurinn um helgina var mjög vel sóttur. Hann hófst á því að Björn Þór Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar HR, kynnti nýja áherslulínu í leikjafræðum. Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt hjá HR, yfirmaður hjá Betware og stjórnarmaður IGI, kynnti því næst samstarfssamning IGI og HR vegna nýju leikjalínunnar.
Ólafur Andri sagði meðal annars að leikjaiðnaðurinn og háskólasamfélagið ættu að vinna saman að því að efla þekkingu og gerð tölvuleikja.
Mikil eftirspurn er eftir fólki menntuðu í tölvunarfræðum og er íslenski tölvuleikjaiðnaðurinn einn af fáum sem eflst hafa mjög í kjölfar kreppunnar.

