Forsíðufréttir

Fundur um vistorku í samgöngum á Íslandi

3.6.2010

Í dag var haldin ráðstefna um visthæfar samgöngur í tengslum við vinnu sem iðnaðarráðherra hefur hrundið af stað og skipun  nefndar um orkuskipti í samgöngum. 

Á ráðstefnunni kynntu aðilar sem tengjast visthæfum samgöngum verkefni sín og framtíðarsýn. Þar var meðal annars fjallað um breytingar á bílum með hefðbundnar vélar í rafbíla og um bifreiðar framtíðarinnar.

Gerð var grein fyrir stöðu þeirra verkefna sem unnið hefur verið að hér á landi á þessu sviði undanfarin ár eins og vetnisverkefni og metanverkefni og fjallað um lífdíeselframleiðslu á Íslandi, svo fátt eitt sé nefnt.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef Iðnaðarráðuneytisins. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar ljósmyndir sem teknar voru á ráðstefnunni.

Ráðstefna um vistorku í samgöngum

Ráðstefna um vistorku í samgöngum

Ráðstefna um vistorku í samgöngum

Ráðstefna um vistorku í samgöngum


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica