Háskólinn í Reykjavík styrkir kjarnasvið og tekur frumkvæði í verkaskiptingu
Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að styrkja kjarnasvið skólans, tækni, viðskipti og lög, frekar en að ráðast í flatan niðurskurð til að mæta lækkun fjárframlaga ríkisins árið 2011. Þrjár námsbrautir verða lagðar niður þegar núverandi nemendur hafa lokið sínu námi.
Ljóst er að fjárframlög ríkisins til háskóla á Íslandi lækka verulega á næsta ári. Háskólinn í Reykjavík ætlar ekki að mæta því með flötum niðurskurði, heldur með því að efla enn frekar kennslu og rannsóknir í tækni, viðskiptum og lögum, kjarnasviðum skólans. Á móti verða þrjár námsbrautir sem einnig eru kenndar við aðra háskóla á Íslandi lagðar niður í áföngum. Tvær þessara námsbrauta, diplómanám í kennslufræði og MPH (meistaranám) í lýðheilsufræði, verða lagðar niður 2011. Sú þriðja, BSc (grunnnám) í stærðfræði, verður lögð niður 2012. Í staðinn verður stærðfræðikennsla í öðru námi á kjarnasviðum skólans styrkt enn frekar. Tæplega 100 af um 3.000 nemendum skólans eru á þessum þremur námsbrautum. Breytingarnar verða gerðar í áföngum og mun HR uppfylla allar skuldbindingar sínar gagnvart núverandi nemendum á umræddum námsbrautum. Vert er að geta að áfram verður haldið námi í sálfræði og íþróttafræði við HR.
Það er stór og erfið ákvörðun fyrir háskóla að leggja niður námsbrautir og ekki var farið í slíkt fyrr en aðrar leiðir voru fullreyndar. Námsbrautirnar þrjár, eins og aðrar brautir við Háskólann í Reykjavík, hafa gengið vel og hefur mikil ánægja verið meðal nemenda með kennslu og skipulag námsins. Lækkun fjárframlaga ríkisins fyrir árin 2009 og 2010 var mætt með auknum byrðum á alla sem starfa við skólann, í formi launalækkunar, aukins álags og mikillar hagræðingar í rekstri. Þar sem ekki verður lengra komist án þess að það bitni á gæðum starfsins, vill HR mæta enn minnkandi fjárframlögum af ábyrgð og með heildarhagsmuni nemenda og samfélags að leiðarljósi.
Aðsókn að námi í Háskólanum í Reykjavík er góð og eru umsóknir um skólavist í vor fleiri en í fyrra. Skólinn er í fremstu röð á sínum kjarnasviðum, bæði í kennslu og rannsóknum, og gegnir hann lykilhlutverki fyrir atvinnulíf landsins. HR útskrifar um 2/3 af öllu háskólamenntuðu tæknifólki á Íslandi, um helming viðskiptafræðinga og ríflega þriðjung lögfræðinga.
Með því að ráðast í umræddar breytingar getur HR tekið á móti fleiri nemendum á sínum kjarnasviðum, aukið gæði kennslu á þeim sviðum og eflt rannsóknir enn frekar. Þannig getur skólinn tryggt að íslenskt atvinnulíf fái þann vel menntaða mannauð sem kallað er eftir og nauðsynlegur er fyrir uppbyggingu íslensks efnahags. HR mun jafnframt halda áfram að efla þjónustu sína við fyrirtæki og einstaklinga í gegnum Opna háskólann.
Þær breytingar sem nú eru kynntar eru gerðar með vitund menntamálaráðuneytisins og samræmast þeirri stefnu að skapa skýra sérstöðu og auka verkaskiptingu. Það er æskilegt að aðrir háskólar landsins geri sem fyrst skýra grein fyrir því hvernig niðurskurði verði mætt og er Háskólinn í Reykjavík reiðubúinn til samstarfs. Með því að upplýsa strax um sín viðbrögð stendur Háskólinn í Reykjavík vörð um hag nemenda og gæði akademísks starfs, jafnframt því að taka frumkvæði að meiri verkaskiptingu og betra samstarfi á milli háskóla landsins.

