Forsíðufréttir

36 nemendur frumgreinanáms HR útskrifast

18.6.2010

36 nemendur frumgreinanáms Háskólans í Reykjavík voru útskrifaðir með frumgreinapróf laugardaginn 12. janúar s.l.  Útskriftin fór fram í nýju húsi Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.

Við athöfnina flutti Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans ávarp. Af hálfu  útskriftarnema talaði Marteinn Friðriksson  og af hálfu eldri nemenda  Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.  Anna Klara Georgsdóttir söng íslensk og þýsk lög við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.

Við útskriftina hlaut Susanne Barbara Götz  viðurkenningu Samtaka iðnaðarins  fyrir bestan árangur í frumgreinanámi og Jóhann Fannar Guðjónsson hlaut viðurkenningu frá Þýska sendiráðinu fyrir ágætan árangur í tungumálum og hugmyndasögu. Eftir að nemendur höfðu fengið skírteini sín talaði rektor HR  Ari Kristinn Jónsson.

Myndir frá athöfninni:


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica