Til fyrirmyndar átakið er í dag
Háskólinn í Reykjavík er einn þeirra aðila sem stendur að átakinu „Til fyrirmyndar“ sem er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni
Í dag, þann 29. júní nk. verða 30 ár liðin frá því að Íslendingar voru fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum – konu sem hefur verið fjölmörgum til fyrirmyndar allar götur síðan. Átakinu er ætlað að minnast þessara sögulegu tímamóta – og vísa til þess að íslenska þjóðin hafi með þessu móti verið til fyrirmyndar. Landsmenn eru hvattir til að gefa sér stund til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu.
Þriðjudaginn 29. júní mun Vigdís Finnbogadóttir setjast niður og skrifa bréf sem ber yfirskriftina „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“. Allir landsmenn eru hvattir til að taka þátt og senda handskrifaða kveðju til fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra sem þeir telja hafa verið til fyrirmyndar. Bréfsefni sem má setja ófrímerkt í póst verður dreift inn á heimili um allt land dagana 29. og 30. júní.
„Með því að leiða hugann að því sem vel er gert og okkur þykir til fyrirmyndar auðveldum við okkur að finna hvaða leiðir við viljum velja til framtíðar sem einstaklingar, fjölskyldur, skólar, vinnustaðir og síðast en ekki síst sem þjóð. Lögð verður áhersla á samræður og þakklæti sem Vigdísi hefur verið hugleikið í gegnum tíðina. Átakið ýtir einnig undir samheldni og jákvætt hugarfar,“ segir Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Til fyrirmyndar.
Vefur átaksins er á slóðinni: www.tilfyrirmyndar.is. Á vefnum er fjallað um gildi fyrirmynda í pistlum og viðtölum. Hægt er að benda á einstaklinga og verk sem fólki finnst vera til fyrirmyndar og er óskað eftir að sem flestir sendi inn ábendingar. Á vefnum eru einnig birt fróðleikskorn úr tveimur meistaraprófsritgerðum um fyrirmyndir.
Að verkefninu standa m.a. Exedra, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, LeiðtogaAuður og Félag kvenna í atvinnurekstri. „Mestu skiptir að finna hugmyndum góðan og frjóan farveg þannig að þær fái tækifæri til að þróast og verða að veruleika. Fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir hafa gengið til liðs við hópinn sem hefur gert það að verkum að hugmyndin hefur mótast í farsæla átt. Allir hafa verið boðnir og búnir að leggja verkefninu lið og gefa vinnu sína til að það megi verða að veruleika og er sú samvinna sem hefur átt sér stað algjörlega til fyrirmyndar,“ segir Sigþrúður Ármann, formaður Exedra, en á vefsíðunni má sjá hverjir fleiri hafa lagt hönd á plóg.

