Nýnemar boðnir velkomnir
Háskólinn í Reykjavík leggur áherslu á að taka vel á móti nemendum sem hefja nám við skólann. Skólastarf hvers árs hefst með nýnemadögum þar sem farið er yfir mikilvæg atriði sem nýtast nemendum í náminu.
Þriðjudaginn 17. ágúst og miðvikudaginn 18. ágúst eru nýnemadagar nemenda í grunnnámi (nemendur mæta báða daga). Sjá dagskrá þriðjudags og dagskrá miðvikudags.
Tekið er á móti nemendum í meistaranámi eftir hádegi 18. ágúst. Sjá dagskrá meistaranema. (Kynningin er einnig ætluð nemendum sem eru að hefja nám í kennslufræði).
International master students are invited to orientation on Wednesday 18th of August. See the international programme.
Kynning fyrir nýja nemendur í tölvunarfræði og viðskiptafræði sem eru að hefja háskólanám með vinnu (HMV) verður 18. ágúst kl. 16:20. Sjá dagskrá HMV.
Kennt er meðal annars á kennslu- og upplýsingakerfi sem nemendur þurfa að nota meðan á námi stendur, þjónusta við nemendur kynnt og fjallað um lykilatriði til árangurs í háskólanámi.
Mjög mikilvægt er að allir nýnemar komi á nýnemadaga HR til þess að vera undirbúnir undir að hefja nám við skólann þegar kennsla hefst fimmtudaginn 19. ágúst. Á nýnemadögum gefst einnig tækifæri á að kynnast lykilstarfsmönnum skólans og samnemendum.

