Fyrstu nýnemadagar HR í nýju húsnæði
Í dag hófst skólastarf ársins með því að dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR bauð velkominn fyrsta nýnemahópinn sem hefur nám sitt í nýju húsnæði skólans. Að loknu ávarpi rektors og Magnúsar Júlíussonar, formanns Stúdentafélagsin, tóku við kynningar einstakra deilda fyrir nemendur í grunnnámi.
Háskólinn í Reykjavík leggur áherslu á að taka vel á móti nemendum sem hefja nám við skólann og hefst skólastarf hvers árs með svokölluðum nýnemadögum sem nú eru haldnir 17. og 18. ágúst. Yfir 1000 nemendur hefja nám við HR á þessu hausti, þar af um þriðjungur í meistaranámi.


Grunnnámsnemendur eru væntanlegir aftur á morgun og þá verður einnig tekið á móti nýjum nemendum í meistaranámi.
Meðfylgjandi myndir eru teknar í nýju miðrými HR, Sólinni.


