Forsíðufréttir

Nýnemar með öllu

18.8.2010

Í hádeginu í dag bauð Stúdentafélag HR nýnemum í grunnnámi og erlendum skiptinemum til grillveislu í ágústsólinni.

Grillveislan var lokahnykkur á móttöku nýnemanna sem flestir munu mæta í fyrstu fyrirlestrana á morgun, fimmtudag. Ekki var annað að sjá en nemarnir væru glaðbeittir og tilbúnir fyrir átök vetrarins þar sem þeir gæddu sér á grilluðum pylsum með öllu. Í tilviki skiptinemanna má gera ráð fyrir að þetta hafi verið fyrstu kynni þeirra af alvöru íslenskum pylsum.

Háskóladansinn, dansfélag háskólanema, bauð einnig upp á danssýningu við dúndrandi undirspil og góðar undirtektir viðstaddra.

Nýnemagrill 2010

Nýnemagrill 2010

Nýnemagrill 2010

Nýnemagrill 2010

Nýnemagrill 2010

Nýnemagrill 2010



 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica