Forsíðufréttir

Námskeið fyrir doktorsnema í réttarsálfræði

23.8.2010

Í síðustu viku var haldið námskeið í Háskólanum í Reykjavík á vegum Nordic Network for Research on Psychology and Law (NNPL) og Lagadeildar og Kennsufræði og lýðheilsudeildar skólans fyrir evrópska doktorsnema í réttarsálfræði. Þetta er í fjórða sinn sem NNPL heldur námskeið fyrir doktorsnema, en þau hafa verið haldin við Háskólann  í Gautaborg í Svíþjóð og Háskólann í Turku í Finnlandi.

Námskeiðið er í þremur hlutum og gefur 7,5 ECTS. Fyrst hlutinn felst  í lestri bóka og vísindagreina um réttarsálfræði. Annar hlutinn er vikunámskeið þar sem nemarnir kynna rannsóknarverkefni sín og fá viðbrögð við þeim og þriðji og síðasti hlutinn felst í því að nemarnir skrifa vísindagrein tengda   doktorsverkefni sínu. Ellefu doktorsnemar, frá fimm löndum, sóttu námskeiðið og var farið yfir rannsóknarverkefni þeirra auk þess sem þeir fengu þjálfun í halda erindi um vísindalegar niðurstöður, framkomu í fjölmiðlum og að skrifa vísindagreinar.

Tveir þekktir vísindamenn kenndu á námskeiðinu auk þess sem þeir héldu opin hádegiserindi í Háskólanum í Reykjavík. Þetta voru  Gísli H. Guðjónsson, prófessor við King‘s College í London og gistiprófessor við Háskólann í Reykjavík og Peter van Koppen, prófessor við Maastrict University og Free University í Amsterdam . Erindi Gísla hafði yfirskriftina Psychologial vulnerabilities in police interviews. Why are they important? og erindi Peters hét Some correlates of miscarriages of justice.

Námskeiðið var skipulagt af Jóni Friðriki Sigurðssyni, yfirsálfræðingi á geðsviði Landspítala og prófessor við Háskóla Íslandi og Háskólann í Reykjavík og Önnu Kristínu Newton, sálfræðing hjá Fangelsismálastofnun ríkisins og stundakennara við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Þá lögðu starfsmenn Háskólans í Reykjavík sitt að mörkum við undirbúning og framkvæmd námskeiðsins.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica