Dr. Sverrir Ólafsson aðalræðumaður á alþjóðlegri ráðstefnu í Kína
Dr. Sverri Ólafssyni, prófessor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur verið boðið að vera aðal ræðumaður á „The First International Conference on Pervasive Computing, Signal Processing and Applications (PCSPA2010)“, sem haldin verður í Harbin í Kína 17-19 September, 2010, http://bit.kuas.edu.tw/~pcspa10/index.html.
Í erindinu mun Sverrir ræða eigin rannsóknir á samhliða notkun tæknilegra og markaðsvæddra aðferða til að bæta nýtingu fjarskiptaróðs í þráðlausum samskiptum. Uppistaða markaðsvæddra aðferða er bréfeignarvæðing fjarskiptarófsins (e. securitized communication spectrum) sem gengur kaupum og sölu á handbærum afurðamörkuðum (e. liquid commodity markets).
Sverrir mun ræða rannsóknir sínar á verðlagningaraðferðum og eins hvernig verslun með fjarskiptaróf getur leitt til hagkvæmari og virkari nýtingar þess. Markaðsvæðing og markaðsviðskipti með fjarskiptaróf koma til með að verða sérstaklega mikilvæg í ljósi síaukinnar notkunar þráðlausra samskipta, sem hefur leitt til aukinna fjarskiptarófsþrengsla og truflandi víxláhrifa. Nánari lýsingu á erindi Sverris er að finna á, http://bit.kuas.edu.tw/~pcspa10/keynote.html.

