Forsíðufréttir

Skiptar skoðanir um trúnaðar- og þagnarskyldu presta

30.8.2010

Fundur um trúnaðar- og þagnarskyldu presta, sem haldinn var í dag á vegum lagadeildar HR, var vel sóttur og spunnust fjörugar umræður í lok fundar. Skiptar skoðanir á málinu komu fram í erindum dr. Sigríðar Guðmarsdóttiu sóknarprests og Stefáns Einars Stefánssonar guðfræðings og  viðskiptasiðfræðings.

Svala Ólafsdóttir, fundarstjóri, opnaði fundinn með innleggi um lagalega þætti málsins og sagði í lokin ,,Það er alveg ljóst að málefni okkar fyrrverandi biskups og hvernig á því var tekið innan kirkjunnar alveg frá upphafi hefur vakið reiði og hneykslan. Talað er um aðskilnað ríkis og kirkju, fréttir berast þess efnis að fólk segi sig í stríðum straumum úr þjóðkirkjunni, fyrirhugað er að setja á stofn svonefnda “sannleiksnefnd” sem er nokkurs konar “rannsóknarnefnd” og hefur það hlutverk að grafast fyrir um hvað gerðist og hvernig tekið var á því máli af hálfu kirkjunnar.  Öll þessi umræða hefur leitt til víðtækari umræðu um trúnaðar- og þagnarskyldu og hversu rík hún sé og hver takmörk hennar eigi að vera þegar kemur að kynferðisbrotum sérstaklega, þótt áþekk álitamál kunni einnig að vakna í tengslum við aðrar misgjörðir.”
 
Stefán Einar fjallaði um trúnað og fortakslausa þagnarskyldu m.a. út frá nytjahyggju. Taldi Stefán að fortakslaus þagnarskylda yrði til þess að prestar gætu mögulega fengið einstaklinga til að ræða afbrot sín og í þeim tilvikum gæfist tækifæri til að höfða til samvisku fólks og fá það til að gangast við brotum sínum. Farvegur gæti þá opnast til að greiða úr málum og vernda þá sem þyrfti. Aftur á móti sagði hann skilyrtan trúnað gera það að verkum að mál er varði afbrot með einhverjum hætti kæmu ekki fram í skriftum og þar með yrði enginn farvegur til staðar til að fá menn með yfirveguðum hætti til að snúa til betri vegar, enn meiri þöggun ríkti og fólk ætti almennt erfiðara með að treysta prestum fyrir sínum innstu leyndarmálum.

Dr. Sigríður varpaði ljósi á trúnaðar- og þagnarskyldu presta út frá guðfræðinni, tilgangi skrifta og sögu. Hún sagði vandann liggja í úreltri guðfræði og að kirkjan þyrfti, í ljósi þeirra atburða er nú skyllu á henni, að taka sín mál til endurskoðunar.

Sjónvarp mbl.is birti samantekt af fundinum og ræddi við dr. Sigríði og Stefán Einar.

Gestir á hádegisfundi

Gestir á hádegisfundi

Svala Ólafsdóttir, fundarstjóri


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica