Forsíðufréttir

Gestkvæmt við upphaf skólaársins

1.9.2010

Undanfarið hefur verið gestkvæmt í hinu nýja húsnæði HR hér í Nauthólsvíkinni. Með opnun miðrýmisins, Sólarinnar, er byggingin farin að taka á sig sína framtíðarmynd og lífið í skólanum að taka mið af því.

Auk tilfallandi gesta sem líta við hjá okkur á leið um Öskjuhlíðina eða meðfram sjávarsíðunni hefur undanfarið verið tekið á móti fjölmörgum hópum, bæði íslenskum og erlendum.

Sem dæmi má nefna að nú er hér í heimsókn hópur verkfræðinema frá Finnlandi og Eistlandi sem fær kynningar á skólanum og verkefnum hans, auk fyrirlestra um vistvæna orku.

Um er að ræða hóp frá Tampere University of Applied Sciences og frá Tallin. Þessi ferð er styrkt af Nordplus en nemendur HR og 3 kennarar fóru haustið 2009 til Finnlands og Eistlands í tengslum við sama verkefni sem fjallar um vistvæna orku.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica