Talent Management of Knowledge Workers
Talent Management of Knowledge Workers er titill nýrrar bókar eftir Vlad Vaiman, forstöðumann framhaldsnáms í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. 
Meginþema bókarinnar er hvernig nýta má betur hæfileika og þekkingu óhefðbundinna starfsmanna í fyrirtækjum, lausamanna og sjálfstæðs starfandi fólks (e. freelancers), en hæfileikar þeirra eru oft mjög vannýttir.
Vlad Vaiman hefur starfað við Háskólann í Reykjavík um rúmlega 2ja ára skeið, en hann er þar auki gestaprófessor við marga af virtustu háskólum heims. Hann er einn stofnenda og ritstjóra hins virta rits European Journal of International Management (EJIM).
Bókina má m.a. nálgast í vefversluninni amazon.

