Forsíðufréttir

Doktorsnám í boði við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík

8.9.2010

Tækni- og verkfræðideild HR hefur fengið heimild menntamálaráðuneytisins til að útskrifa nema með doktorspróf í verk- og tæknivísindum. Með þessu er lokið mikilvægum áfanga í uppbyggingu deildarinnar, sem nú hefur leyfi til að útskrifa tæknimenn á öllum stigum háskólanáms.

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík (TVD) er stærsta deild HR með um 1000 nemendur. Deildin býður fjölbreytt nám í verkfræði, tæknifræði og iðnfræði til diplómagráðu, bakkalárgráðu og meistaragráðu. Á síðustu misserum hefur umfang rannsókna við deildina vaxið mjög hratt með ráðningu fjölda öflugra akademískra starfsmanna, sem margir hverjir hafa komið erlendis frá, auk vaxandi rannsóknarvirkni eldri starfsmanna.

Nefnd alþjóðlegra sérfræðinga fjallaði um umsókn deildarinnar til menntamálaráðuneytisins og heimsótti m.a. deildina í byrjun þessa árs. Sæti í nefndinni áttu virtir norrænir sérfræðingar, sem allir hafa verið í farabroddi varðandi þróun tækni og raunvísindanáms í heimalöndum sínum. Þeir eru Hans Peter Jensen, fyrrverandi rektor DTU (Danmarks Tekniske Universitet), Paavo Uronen, fyrrverandi rektor HUT (Tækniháskólans í Helsinki) og Per Nyborg, fyrrverandi framkvæmdastjóri UHR í Noregi (Universitets- og Høgskolerådet).

Skemmst er frá því að segja að nefndin mælti eindregið með því að TVD fengi leyfi til að útskrifa doktora og fór mjög lofsamlegum orðum um rannsóknir og kennslu við deildina. Nefndin er þeirrar skoðunar að uppbygging doktorsnáms sé nauðsynleg í rannsóknarumhverfi eins og því sem byggt hefur verið upp við tækni- og verkfræðideild. Að mati nefndarmanna hefur deildin og starfslið hennar fulla burði til þess að axla þá ábyrgð sem fylgir doktorsnámi.

Formaður nefndarinnar, Hans Peter Jensen, var einnig formaður nefndar sem mat umsókn TVD um viðurkenningu á bakkalár- og meistaranámi TVD árið 2007.

Sú nefnd lýsti sérstakri aðdáun sinni á þeirri fagmennsku og metnaði sem hún varð vitni að hjá Háskólanum í Reykjavík. Skýrslan var mjög jákvæð, þó sett væru fram nokkur atriði til umhugsunar og ráðleggingar fyrir deildina, sem flest tengdust ungum aldri hennar. Nefndin mælti með að endurmat á deildinni færi fram árið 2012.

Í nýju úttektarskýrslunni sem gerð er í tengslum við doktorsnámið fjallar nefndin að eigin frumkvæði um öll þau atriði sem nefnd voru til umhugsunar árið 2007. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að þróun tækni- og verkfræðideildar hafi verið afar jákvæð og framsækin og að leyst hafi verið úr öllum þeim umhugsunarefnum sem sett voru fram í fyrri skýrslu. Því sé ekki þörf á endurmati á grunnnámi og meistaranámi á árinu 2012 eins og áður hafði verið lagt til.

Dr. Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni og verkfræðideildar HR segir þessa niðurstöðu afskaplega ánægjulega og að hún undirstriki þann góða árangur sem náðst hefur við uppbyggingu rannsókna og tæknináms við deildina. Viðurkennt doktorsnám er síðasti áfanginn í uppbyggingu öflugrar tækni- og verkfræðideildar sem starfar nú á öllum stigum tæknináms á háskólastigi.

Skýrslu sérfræðinganefndarinnar má finna á vef Menntamálaráðuneytisins.

http://www.menntamalaraduneyti.is/media/MRN-pdf/RU_Accr_Engineering_Final_Report.pdf


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica