Forsíðufréttir

Erlendir straumar um allan skóla

9.9.2010

Um eitthundrað erlendir nemendur stunda nú nám við Háskólann í Reykjavík. Þeir koma flestir frá Evrópu, en nokkrir nemendur eru frá Kína og S-Kóreu. Fjölmennasti hópurinn kemur frá Spáni eða 24 nemendur, 16 nemendur eru frá Þýskalandi og 11 frá Frakklandi.

Skiptinemar-haust-2010Nemendur HR hafa lagt sig fram um að taka vel og hlýlega á móti þessum nýju nemendum. Þeir hafa farið með þeim í gönguferð á Esjuna, kynnt fyrir þeim íslenskt næturlíf og margt fleira er á döfinni á næstu vikum, ferðalög og skemmtanir.

Vel hefur gengið að finna húsnæði fyrir þessa nemendur. Sumir búa á gistiheimilum og aðrir leigja sér húsnæði, yfirleitt nokkrir saman um íbúð.

Flestir nemanna verða hér í eina önn, en þriðjungur þeirra ætlar sér að hafa vetursetu hér á landi.

Nemendum og starfsmönnum HR gefst gott tækifæri til að kynnast erlendu nemunum okkar betur á alþjóðadegi HR sem haldinn verður 30. september, en þá kynna þeir þá skóla sem þeir koma frá og matreiða góðgæti frá heimaslóðum sínum sem okkur býðst að gæða okkur á.

Skiptinemar-haust-2010-b


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica