HR gerir samstarfssamning við Tækniháskólann í Peking
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur um nemendaskipti á milli Tækniháskólans í Peking og Háskólans í Reykjavík. Rektor Tækniháskólans, Guo Guangsheng, og sendiherra Íslands í Kína, Kristín Árnadóttir, fyrir hönd HR, undirrituðu samstarfssamninginn í byrjun þessa mánaðar. Við það tækifæri kynnti Kristín stöðu íslenska háskólasamfélagsins fyrir rektor og rakti stuttlega sögu og þróun Háskólans í Reykjavík. Það er trú von og sannfæring stjórnenda beggja skóla að undirritun þessa samnings muni stuðla að auknum samskiptum, ekki bara nemenda skólanna, heldur einnig kennara og fræðimanna skólanna og að þeir nýti þetta tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn og sækja sér reynslu og þekkingu í nýtt og spennandi umhverfi. Nú þegar er einn nemandi frá HR við nám í Tækniháskólanum í Peking.
Skólinn er talinn verða einn af 100 lykilháskólum heimsins á 21. öldinni. Hann var stofnaður árið 1960 og stunda um 17.000 nemendur nám við skólann.


