Forsíðufréttir

Verkefnafulltrúi viðburða og ferða

26.1.2012

- Búið er að loka fyrir umsóknir um starfið-

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða verkefnafulltrúa í deild viðburða og ferða. Starfið er mjög fjölbreytt en deildin sér um skipulagninu allra viðburða og ferða á vegum skólans og er í nánu samstarfi við aðrar deildir, þá sérstaklega þjónustudeild og fasteignaumsjón. Starfið heyrir undir forstöðumann viðburða og ferða.

STARFSSVIÐ:

  • Umsjón með skipulagningu á öllum viðburðum og ráðstefnum innan HR og á vegum HR, þ.m.t. útskriftum og skólasetningu ásamt viðveru á þeim
  • Annast pantanir ferða og bókanir starfsmanna á ráðstefnur á vegum skólans
  • Sjá um að upplýsingar berist til samskiptasviðs, starfsmanna og nemenda varðandi viðburði skólans
  • Innkaup á veitingum, gjöfum o.fl.
  • Staðgengill forstöðumanns viðburða og ferða
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt beiðni forstöðumanns

HÆFNISKRÖFUR:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Haldgóð reynsla af ferðamálum
  • Röggsemi og frumkvæði
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Þarf að geta unnið sveigjanlegan vinnudag

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ýr Gunnlaugsdóttir, forstöðumaður viðburða og ferða í síma 599 6248 eða netfang yrg@ru.is. Umsóknum skal skilað rafrænt til Háskólans í Reykjavík fyrir 2. febrúar 2012. Slóðin er www.hr.is/lausstorf. Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.



 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica