Forsíðufréttir

HR-Vinnustofan 2012

1.2.2012

HR-Vinnustofan 2012Um 20 þátttakendur úr stjórnum félaga í framhaldsskólum tóku þátt í velheppnaðri vinnustofu HR þann 26. janúar sl. Yfirskrift vinnustofunnar var Nýttu tækifærið – Tileinkaðu þér árangursríka verkefnastjórnun, kynntu þér leyndarmál leiðtogans og farðu í ferðalag til framtíðar.

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, bauð hópinn velkominn og að því loknu tók Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor við tækni- og verkfræðideild, við og fræddi hópinn um árangursríka verkefnastjórnun. Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans, talaði um Vinnustofa 2012leyndardóma leiðtogans og forystu til framfara, Gréta Matthíasdóttir, ráðgjafi hjá atvinnuþjónustu HR og Aldís Guðný Sigurðardóttir, hópstjóri á alþjóðaskrifstofu HR, skyggndust inn í framtíðina með fyrirlestrinum Þúsund kílómetra ferðalag hefst með einu skrefi. Kristján Pétur Sæmundsson, formaður Stúdentafélags HR, stýrði viðburðinum.

Þetta er í þriðja sinn sem vinnustofan er haldin og höfðu þátttakendur á orði hversu gagnleg vinnustofan var og fengi þau til að hugsa.“ Frábært að fá að taka þátt í vinnustofunni sem svaraði mörgum spurningum en vakti upp jafn margar um leið.

 Um fyrirlesarana:

HR-Vinnustofan 2012Dr. Haukur Ingi Jónsson er lektor við tækni- og verkfræðideild HR. Haukur hefur lokið cand. theol. prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands og S.T.M., M.phil., og Ph.D. prófum frá Union Theological Seminary (Columbia University) í New York. Hann lauk klínísku námi í sálgæslu (CPE) frá Lennox Hill Hospital / The HealthCare Chaplaincy Inc. í New York og klínísku sálgreiningarnámi frá the Harlem Family Institute í New York. Þá hefur Haukur stundað nám við Indiana University School of Business og The Graduate Business School við Heriot-Watt University í Edinborg. Aðaláhersla hans hefur verið á kennslu, uppbyggingu og þróun á MPM-námi (Master of Project Management). Fræðasvið hans eru skipuheildarfræði og þróun skipulagsheilda, stjórnun og verkefnastjórnun, iðnaðar- og skipuheildasálfræði, samskiptafræði, samningafræði, deilustjórnunarfræði, aflfræði hópa, mannlegur þroski og þróun, markþjálfun, æðri hugsun (gagnrýnin, skapandi og siðræn hugsun), sálgreining og djúpsálarfræði, trúarbragðafræði, menningarfræði og siðfræði.

Guðrún Högnadóttir er framkvæmdastjóri Opna háskólans. Guðrún hefur lokið BSPH og MHA háskólagráðum frá University of North Carolina in Chapel Hill á sviði heilbrigðisstefnumótunar og stjórnunar. Jafnframt hefur hún lokið Advanced Management Program (AMP) frá IESE/HR og er með alþjóðleg ACC réttindi sem markþjálfi. Hennar sérþekking liggur á sviði stefnumörkunar, persónulegrar forystu og færni, auk leiðtogafræða.

Gréta Matthíasdóttir er náms- og starfsráðgjafi hjá Atvinnuþjónustu HR. Gréta stundar nám til MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf, hún hefur lokið diplómaprófi í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ og B.ed prófi frá Kennaraháskóla Íslands. Sérsvið hennar eru starfshamingja – hamingja, starfsmannaval, ferilskrásgerð, kynningarbréf og atvinnuviðtöl, áhugi, áhugasvið, náms og starfsval, réttindi til að leggja fyrir Strong áhugasviðspróf, tímaskipulag og námstækni.HR-Vinnustofan 2012

Aldís Guðný Sigurðardóttir  er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum. Hún hefur rannsakað ólíka samningatækni kynjana í launaviðræðum og efnahags- og fjárhagsleg tengsl milli kína og afríku. Hún hafnaði í öðru sæti á „heimsmeistaramóti“ í samningatækni sem haldið var í Leipzig í Þýskalandi 2011.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica