Býr til þrívíddarlíkön af hauskúpum
Sigrún Björk Sævarsdóttir útskrifaðist með BSc-gráðu í heilbrigðisverkfræði frá HR fyrir stuttu. Lokaverkefni hennar er tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Í viðtali við Fréttatímann sagði Sigrún Björk frá verkefninu sem hlotið hefur mikla athygli.
„Mig langaði að vinna við eitthvað sem tengdist náminu mínu og setti mig í samband við leiðbeinanda síðasta vor. Hann nefndi þessa hugmynd sem hefði komið frá heilaskurðlækni á spítalanum, þar sem hann starfar. Tæknin er til staðar en hún hefur hingað til verið notuð við kjálkaskurðlækningar og undirbúning við lengingu á kjálka. Við ræddum möguleikana á að nýta þetta einnig á heila- og skurðlæknasviði og í framhaldinu fékk ég styrk hjá Rannís síðasta sumar og gat því í samvinnu við heilaskurðlækninn látið þetta verða að veruleika,“ segir Sigrún Björk Sævarsdóttir í viðtali við Fréttatímann.
Verkefni hennar hefur hlotið mikið lof innan læknastéttarinnar en það fólst í því að smíða og samþætta þrívíddarmódel við staðsetningarbúnað sem notaður er við heilaskurð. Módelið hannar Sigrún eftir mjög nákvæmum þrívíddarmyndum, annarsvegar úr segulómun og hinsvegar sneiðmyndir. Úr teikningunum vinnur hún þrívíddarmódel af höfuðkúpu sjúklings í raunstærð sem er svo prentað í þartilgerðum þrívíddarprentara.
