Fréttir eftir árum



Alþjóðleg gæðavottun og jafnt hlutfall karla og kvenna

Í viðtali við Hag, tímarit viðskiptafræðinga og hagfræðinga, segir Kristján Vigfússon, forstöðumaður MBA-náms Háskólans í Reykjavík frá áherslum í þróun námsins.

Í umfjöllun blaðsins segir m.a.:

Kristján Vigfússon er nýtekinn við MBA náminu í Háskólanum í Reykjavík og hann segir viðskiptamódel HR  einstakt þegar kemur að MBA kennslu. Hann nefnir í fyrsta lagi þá nálgun að  vera með kennara frá bestu viðskiptaháskólum austan hafs og vestan.  „Við höfum verið svo heppin að þeir kennarar sem völdust til kennslu á upphafsárum námsins hafa margir hverjir reynst framúrskarandi og hafa haldið tryggð við skólann og eru enn að kenna hjá okkur,“ segir Kristján. Kennararnir sem Kristján vísar til koma frá mörgum bestu viðskiptaháskólum heims einsog IESE í Barcelona, Richard Ivey og Rotham í Canada , Boston University í Bandaríkjunum og London Business School í UK.  Í dag er IESE númer níu á lista Financial Times yfir bestu viðskiptaháskóla heimsins og London Business School númer fjögur sem þýðir að þeir séu númer eitt og tvö í Evrópu.

Kristján nefnir í öðru lagi þá staðreynd að  þessir kennarar koma með námskeiðin sín hingað og kenna þá með nákvæmlega sama hætti og þeir gera í sínum heimaskólum, geri sömu kröfur og haldi uppi sömu gæðum. „Við teljum því að okkar nemendur séu ekki bara að fá bestu kennslu sem völ er á heldur einnig strauma og stefnur frá öllum heimshornum.“

Tilviðbótar hefur MBA námið í Háskólanum í Reykjavík farið í gegnum tveggja ára alþjóðlegt vottunarferli sem eingöngu allra bestu MBA nám í heiminum komast í gegnum, svokallaða AMBA vottun, sjá; http://www.mbaworld.com/accreditation

Af rúmlega sex þúsund MBA prógrömum sem eru  í boði víðsvegar  í heiminum hafa eingöngu 198 skólar þessa vottun og þar er MBA námið í Háskólanum í Reykjavík í hópi með allra bestu skólum Evrópu eins og IESE í Barcelona, London Business School, INSEAD í Frakklandi og IMD í Sviss.

Kristján segir að annað sem aðgreini námið  í HR frá öðru MBA námi séað hlutfall kvenna og karla í náminu er jafnt hátt. „Það þekkist ekki í öðru MBA námi sem við berum okkur saman við en hefðbundið hlutfall er 70% karlmenn og 30% konur sem við teljum ekki endurspegla þjóðfélagið eða atvinnulífið með réttum hætti.“

Nemendur og kennarar  sem vinna fyrir og með íslensku atvinnulífi

Kristján segir alla leggja sig fram um að bæta námið þannig að það þjóni sem best þörfum atvinnulífsins. MBA námið er nú orðið 12 ára gamalt í HR og á þessum tíma hafa því tæplega 500 nemendur útskrifast og fundið sér störf í íslenskum og erlendum fyrirtækjum, hagmunasamtökum eða stofnunum og  eða stofnað sín eigin fyrirtæki. „Við erum afskaplega stolt af nemendunum okkar sem eru allt frá því að vera miklir frumkvöðlar með eigin fyrirtæki stór sem smá og  í það að stýra og stjórna mörgum stærstu fyrirtækjum landsins. Við höfum áhuga á að skapa enn sterkari samstarfsvettvang með fyrirtækjum landsins með það að markmiði að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs en skólinn er eins og allir vita skóli atvinnulífsins.“

Kristján bendir á að erlendu kennararnir séu einnig mjög eftirsóttir hjá íslenskum fyrirtækjum í ráðgjöf og kennslu inn í fyrirtækjunum sjálfum og að nemendurnir verðialltaf jafn hissa á hvað þeir þekkja vel til í atvinnulífi landsins. „Margir kennaranna hafa notað íslenskt atvinnu- og efnahagslíf sem efnivið í kennsluefni sem kennt er út um allan heim. Auk þessa erum við með nokkra þaulreynda íslenska kennara sem kennt hafa lengi við Háskólann í Reykjavík og sem eru allir í mjög sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf. Aðkoma þessara kennara hefur styrkt deildina hjá okkur mjög mikið en mikilvægt er að hafa rétta blöndu af innlendum og erlendum kennurum.“

Sjálfbærni og fjölgun kvenna í kennslu

Markvisst er unnið að því að fjölga kvenkennurum við viðskiptafræði deildina í HR til að endurspegla betur samfélagið og viðskiptalífið. Kristján hefur þegar ráðið tvo nýja kvenkennara við deildina frá því að hann tók við MBA náminu núna í byrjun  febrúar.

„Áherslan á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð eru einnig þættir sem munu verða ofarlega á baugi hjá okkur næstu misseri,  við búum svo vel að FESTA Þekkingarsetur um samfélagslega ábyrgð íslenskra fyrirtækja er starfrækt í skólanum okkar og þar sjáum við fram á tækifæri til samstarfs og með það að markmiði að efla námið. Á sviði sjálfbærni höfum við Íslendingar mikla sérstöðu sem við teljum að verði aðdráttarafl fyrir íslenska og ekki síður erlenda stúdenta þá sérstaklega hvað varðar endurnýjanlega orku, sjálfbærar fiskveiðar og ferðaþjónustu og það ætlum við að nýta okkur og sækja fram,“ segir Kristján.

MBA nám er ekki bara gagnlegt fyrir þá sem vilja stjórna eða stofna fyrirtæki, Kristján segir  það er líka einstaklega skemmtilegt. „Nemendur okkar tala um námið sem kallað er á enskunni „life changing experience“ eða eitthvað sem fær fólk til að hugsa hlutina upp á nýtt, öðlast víðsýni og fá tækifæri til að vinna með ólíku fólki, þroskast og eflast. Þetta er svo ótrúlega gaman og það er það sem drífur okkur áfram hér í Háskólanum í Reykjavík ásamt því að reyna alltaf að gera betur til að tryggja  að námið sé í stöðugri framþróun og batni frá ári til árs.“