Gæðakerfi stoðþjónustu nær til ferla og úttekta sem snerta stoðþjónustu fyrir nemendur og starfsmenn.
B. Markmið: Að tryggja gæði og sífellda framþróun í stoðdeildum fyrir nemendur og starfslið.
C. Hugtök og skilgreiningar:
1. Stoðþjónusta: Með stoðþjónustu innan HR er átt við allar deildir sem starfa þvert á akademískar deildir skólans, og sem leitast við að auðvelda akademískum deildum að uppfylla hlutverk sitt á sviði rannsókna, kennslu og tengsla við atvinnulíf og samfélag.
2. Þjónustukannanir: Kannanir sem lagðar eru fyrir nemendur og starfsmenn til að kanna viðhorf þeirra til þjónustu stoðdeilda.
3. Árlegt starfsmannasamtal: Viðtöl þar sem sérhver starfsmaður stoðdeilda hittir að máli yfirmann sinn, ræðir árangur í starfi á liðnu ári og setur sér markmið fyrir næsta ár.
4. Endurmenntun: Þegar starfsmenn fara á námskeið eða í formlegt nám til að viðhalda og bæta við þekkingu sína, ýmist innan HR eða utan.
D. Lykilferli:
1. Árleg þjónustkönnun meðal nemenda: Árleg þjónustukönnun meðal nemenda hefur verið gerð frá vorinu 2007, í apríl ár hvert. Spurt er um viðhorf nemenda til allra stoðdeilda sem snerta nemendur. Upplýsingarnar eru kynntar stoðdeildum og notaðar til úrbóta í kjölfarið. Könnunin er gerð með rafrænum hætti og er hvatning um þátttöku send nemendum í tölvupósti.
2. Önnur upplýsingaöflun frá starfsmönnum og nemendum vegna þjónustu stoðdeilda: Stoðdeildir sem halda námskeið fyrir starfsmenn eða nemendum (til dæmis stúdentaþjónusta og kennslusvið) leggja ávallt fyrir mat á námskeiðum í lokin, og vinna úr þeim til að tryggja gæði og nýtingu þjónustunnar. Kannanir þessar eru ýmist lagðar fyrir rafrænt eða á pappír.
3. Starfsmannasamtöl: Á hverju ári eru haldin starfsmannasamtöl í stoðdeildum á tímabilinu desember til mars. Þetta mat fylgir áþekku ferli og í tilfelli akademískra starfsmanna (sjá að ofan) en annað form er þó á spurningablöðum.
4. Endurmenntun: Sambærilegar reglur gilda varðandi endurmenntun og rannsóknarleyfi fyrir stoðdeildir og akademíska starfsmenn (sjá að ofan), nema hvað varðar rannsóknaleyfi.
5. Árleg þjónustukönnun meðal starfsmanna: Þessi könnun verður framkvæmd í fyrsta sinn 2009 og í henni verður innt eftir ýmsum atriðum í reynslu starfsmanna af þjónustu stoðdeilda.
E. Ábyrgð: Framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála, aðrir stjórnendur og yfirmenn stoðdeilda.

