Ráðgjafanefnd
Í byrjun árs 2008 tók til starfa erlend ráðgjafanefnd Háskólans í Reykjavík (e. advisory board), en hún er skipuð stjórnendum og prófessorum við sjö háskóla sem standa í fremstu röð í heiminum. Nefndin hefur það hlutverk að starfa með háskólaráði og stjórnendum HR að mótun framtíðarstefnu og aðgerðaáætlana. Nefndin hefur komið tvisvar til Íslands, í febrúar 2008 og febrúar 2009. Auk heimsóknanna hafa verið haldnir símafundir með ráðinu.
Í ráðgjafanefndinni eru:
- Dr. Rafael L. Bras, forseti verkfræðideildar Kaliforníuháskóla í Irvine. Kaliforníuháskóli í Irvine telst vera 46. besti háskóli í heimi (ARWU, 2008).
- Dr. Eric Weber, prófessor í stjórnun frá IESE á Spáni og varadeildarforseti viðskiptadeildar IESE og í framkvæmdastjórn IESE. Samkvæmt Economist Intelligence Unit var IESE talinn besti viðskiptaskóli í heimi.
- Dr. Maria Fox, forseti tölvunarfræðideildar Strathclyde háskóla í Skotlandi en hann er meðal bestu háskóla Stóra Bretlands.
- Dr. Jonathan Gosling, forstöðumaður leiðtogafræða við Exeter háskóla í Bretlandi. Exeter var útnefndur háskóli ársins í Bretlandi 2007-2008.
- Dr. Ola Medstad, prófessor í lögum við Oslóarháskóla. Oslóarháskóli er einn af 100 bestu háskólum heims (ARWU, 2008), og þar starfa nú 4 nóbelsverðlaunahafar.
- Dr. John Allegrante, prófessor í lýðheilsufræðum við Columbia University og Háskólann í Reykjavík. Columbia háskóli er einn af fremstu háskólum heimsins og hefur skólanum hlotnast 76 nóbelsverðlaun.
- Dr. Zellman Warhaft, Zellman Warhaft, prófessor í vélaverkfræði við Cornell háskóla. Cornell er einn af átta Ivy League háskólum Bandaríkjanna og var valinn besti háskólinn í vísindum og verkfræði af the National Science Foundation. Alls eru fjörutíu nóbelsverðlaunahafar tengdir skólanum.

