HR í hnotskurn - Framsækið fólk
Nýsköpun í kennslu og lifandi kennsluaðferðir
Sérstakur kennsluþjálfari starfar í fullu starfi við HR og hefur það eina hlutverk að hjálpa kennurum í HR að bæta kennsluna og þróa nýjar og áhrifamiklar kennsluaðferðir. Þá hefur verið gefin úr sérstök Gæðahandbók kennara við HR, og allir kennarar í grunnnámi í HR undirgangast kennslumat tvisvar á önn, á miðju misseri og í lok misseris. Kennslumat í meistaranámi er almennt framkvæmt einu sinni á önn.
Viðurkennt rannsóknastarf á alþjóðlegum vettvangi
Á hverju ári fara allir akademískir starfsmenn gegnum matsferli þar sem rannsóknir þeirra eru metnar af alþjóðlegri nefnd sérfræðinga sem HR hefur ráðið til þessa verkefnis. Niðurstaðan sýnir okkur að við HR eru margir vísindamenn sem eru í fremstu röð á alþjóðavísu hvað varðar áhrif þeirra á sitt fræðasvið. Niðurstöður þessa mats eru notaðar til að deila út þeim fjármunum sem HR hefur til rannsókna á hverju ári.
90% kennara í virkum tengslum við atvinnulífið
Á milli 65% og 100% fastra kennara við deildir HR voru virkir í atvinnulífinu á árinu 2008. Þegar við segjum að kennarar séu virkir í atvinnulífinu felur það meðal annars í sér eitthvað af eftirfarandi:
Þátttaka í verkefnavinnu úti í fyrirtækjum, ráðgjöf, seta í stjórnum fyrirtækja eða opinberum nefndum, leiðtogastörf í faghópum utan akademíunnar, miliganga um ráðningu nemenda í störf í atvinnulífinu eða öflun samninga um starfsnám hjá fyrirtækjum, skýrslugerð fyrir opinbera aðila, öflun fjármuna til rannsókna frá atvinnulífi, kennsla í námi sem fyrirtæki kaupa af HR.
Kennarar frá mörgum af helstu háskólum í heimi
Margir kennarar við HR koma frá virtum erlendum háskólum. Sem dæmi má nefna:
- IESE viðskiptaháskólinn í Barcelona
- Richard Ivey háskóli í Kanada
- Copenhagen Business School
- London Business School
- Columbia University
- University of West Virginia
- Florida University
- Álaborgarháskóli í Danmörku
Mestu gæði í kennslu á Íslandi
Árið 2006 lét Ríkisendurskoðun gera könnun meðal nemenda allra háskóla þar sem viðskiptafræði er kennd, og var meðal annars spurt um ánægju nemendanna með námið og kennsluna. Í ljós kom að gæði kennslu eru mest í HR og að nemendurnir í HR eru ánægðastir með bæði aðgengi að kennurum og aðbúnað nemenda. Sjá nánar í skýrslunni: Kostnaður, skilvirkni og gæði háskólakennslu. Ríkisendurskoðun, júní 2007.
Mest ánægja með samskipti nemenda og kennara á háskólastigi
Árið 2006 lét Ríkisendurskoðun gera könnun meðal nemenda allra háskóla þar sem viðskiptafræði er kennd, og var meðal annars spurt um ánægju nemendanna með námið og kennsluna. Í ljós kom að gæði kennslu eru mest í HR og að nemendurnir í HR eru ánægðastir með bæði aðgengi að kennurum og aðbúnað nemenda. Sjá nánar í skýrslunni: Kostnaður, skilvirkni og gæði háskólakennslu. Ríkisendurskoðun, júní 2007.
Persónuleg nálgun
Frumkvöðlaandi
Samfélagsleg ábyrgð
Háskólinn í Reykjavík sýnir samfélagslega ábyrgð með ýmsum hætti og mikið er leitað til starfsmanna HR um nýtingu sérfræðiþekkingar þeirra í þágu samfélagslega mikilvægra málefna.
Í lok árs 2008 var ákveðið að formgera þessa þjónustu, með því að stofna FRÆIÐ, en það er vettvangur fyrir miðlun á sérfræðiþekkingu HR til verkefna sem eru rekin af samtökum eða aðilum sem ekki hafa hagnað að markmiði og ekki teljast til opinbera geirans. Mörg góðgerðafélög og félagasamtök hafa nýtt sér þessa þjónustu.
Öflugur og fjölbreyttur nemendahópur
Nemendur HR hafa náð geysigóðum árangri í ýmsum samkeppnum undanfarin misseri. Þar má nefna að MBA nemar hlutu bronsverðlaun í alþjóðlegri samkeppni um viðskiptaáætlanir í Bangkok 2008, nemendur og starfsmenn HR urðu tvisvar í röð í fyrsta sæki í alþjóðlegri keppni um besta verkefnið á sviði gervigreindar (2007 og 2008), nemendur HR hafa í tvígang sigrað í hönnunarsamkeppni verkfræðinema í HÍ (2008 og 2009).
Inntökuskilyrði í brautir HR eru almennt ströng, og að meðaltali er aðeins 70% þeirra sem sækja um boðin skólavist, og í sumum brautum er innan við helmingur sem fær boð um skólavist. Nemendur við HR eru á ýmsum aldri, og er meðalaldurinn yfir skólann í heild 29 ár.
Nemendum við HR gengur almennt vel að fá vinnu að loknu námi og gerir Atvinnuþjónusta HR kannanir fyrir hverja útskrift til að fylgjast með atvinnustöðunni. Nemendur HR koma frá nánast öllum mennta- og fjölbrautaskólum landsins á hverju ári, og hafa margir þeirra fjölþætta reynslu að baki, bæði úr félagsstarfi og atvinnulífi. Rannsóknir eru reglulega gerðar á inntökuferlinu við HR, til að tryggja að réttar ákvarðanir séu teknar við inntökuna, svo að nemendahópurinn á hverjum tíma sé sem sterkastur.
Alþjóðlegt frammistöðumat á rannsóknum allra akademískra starfsmanna
Á hverju hausti kemur til HR alþjóðleg nefnd sérfræðinga sem skoða rannsóknir allra akademískra starfsmanna og gefa þeim stig, út frá því hversu mikil áhrif á alþjóðavettvangi hver vísindamaður hefur. Skoðaðar eru birtar rannsóknir síðustu 5 ára hjá hverjum og einum.
Niðurstaðan er notuð við markmiðasetningu í árlegum starfsmannasamtölum, og einnig er niðurstaðan notuð til að skipta þeim fjármunum sem HR hefur til ráðstöfunar á sviði rannsókna. Þannig skapast sterkur hvati fyrir deildir HR og einstaka akademíska starfsmenn til að skara fram úr á sviði rannsókna.
Bylting í íslensku háskólastarfi
Margir telja að stofnun HR hafi valdið vatnaskilum í háskólastarfi á Íslandi þar sem samkeppni var í fyrsta sinn í kennslu á sviðum tölvunarfræði og viðskiptafræði. Síðar bættust lögfræði og verkfræði við, og hafa jákvæð áhrif heilbrigðrar samkeppni komið skýrt fram, bæði innan HR og hjá öðrum háskólum.

