HR í hnotskurn - Alþjóðleg sýn
Kennarar frá 23 löndum
Á árinu 2008 komu kennarar og akademískir starfsmenn HR frá eftirtöldum löndum: Bretland, Þýskaland, Spánn, Bandaríkin, Kanada, Danmörk, Finnland, Svíþjóð, Austurríki, Indland, Íran, Frakkland, Pólland, Rúmenía, Ástralía, Holland, Írland, Ítalía, Rússland, Slóvenía, Brasilía, Ísland.
Yfir 100 samstarfsskólar
Sjá lista yfir samstarfsskóla Háskólans í Reykjavík.
Virk nemenda- og starfsmannaskipti við 61 samstarfsskóla
Nám við HR er ávallt byggt upp með hliðsjón af alþjóðlegum viðmiðum á viðkomandi fræðasviði og lögð er áhersla á að þjálfa með nemendum alþjóðlega sýn á sitt viðfangsefni. Mikilvægur þáttur í þessari alþjóðlegu sýn er að nemendur stundi hluta af námi sínu erlendis, hvort sem um er að ræða skiptinám í eina önn eða eitt ár, eða styttri námsferðir sem eru í boði í flestum deildum HR.
1/3 nemenda fer til útlanda í tengslum við námið
Nám við HR er ávallt byggt upp með hliðsjón af alþjóðlegum viðmiðum á því fræðasviði sem um ræðir og lögð er áhersla á að þjálfa með nemendum alþjóðlega sýn á sitt viðfangsefni. Mikilvægur þáttur í þessari alþjóðlegu sýn er að nemendur stundi hluti af námi sínu erlendis, hvort sem um er að ræða skiptinám í eina önn eða eitt ár, eða styttri námsferðir sem eru í boði í flestum deildum HR.
Alþjóðleg ráðgjafanefnd
Í alþjóðlegri ráðgjafanefnd HR eru sjö stjórnendur og fræðimenn við sjö háskóla sem eru í fremstu röð í heiminum. Meðlimir ráðgjafnanefndarinnar eru þessir:
- Dr. Rafael L. Bras, forseti verkfræðideildar Kaliforníuháskóla í Irvine. Kaliforníuháskóli í Irvine telst vera 46. besti háskóli í heimi (ARWU, 2008).
- Dr. Eric Weber, prófessor í stjórnun frá IESE á Spáni og varadeildarforseti viðskiptadeildar IESE og í framkvæmdastjórn IESE. Samkvæmt Economist Intelligence Unit var IESE talinn besti viðskiptaskóli í heimi.
- Dr. Maria Fox, forseti tölvunarfræðideildar Strathclyde háskóla í Skotlandi en hann er meðal bestu háskóla Stóra Bretlands.
- Dr. Jonathan Gosling, forstöðumaður leiðtogafræða við Exeter háskóla í Bretlandi. Exeter var útnefndur háskóli ársins í Bretlandi 2007-2008.
- Dr. Ola Medstad, prófessor í lögum við Oslóarháskóla. Oslóarháskóli er einn af 100 bestu háskólum heims (ARWU, 2008), og þar starfa nú 4 nóbelsverðlaunahafar.
- Dr. John Allegrante, prófessor í lýðheilsufræðum við Columbia University og Háskólann í Reykjavík. Columbia háskóli er einn af fremstu háskólum heimsins og hefur skólanum hlotnast 76 nóbelsverðlaun.
- Dr. Zellman Warhaft, Zellman Warhaft, prófessor í vélaverkfræði við Cornell háskóla. Cornell er einn af átta Ivy League háskólum Bandaríkjanna og var valinn besti háskólinn í vísindum og verkfræði af the National Science Foundation.
Alls eru fjörutíu nóbelsverðlaunahafar tengdir skólanum.
146 námskeið kennd á erlendu tungumáli
Dæmi um námskeið sem eru kennd á ensku á vorönn 2009:
- Derivatives
- International finance
- Numerical techniques for financial engineering
- Overview of sustainable energy systems
- Business statistics
- Global business environment
- Human resource management in international context
- Market research
- European law
- Health economics as managerial tools
- Epidemiology
- Organizational behavior in health
- Advanced software engineering
- Modeling and verification
- Stochastic processes
- Mathematical programming
- Statistics
17% kennara erlendir
(Texti?)
242 fjölþjóðleg verkefni í gangi
Fjölþjóðleg verkefni við HR eru margvísleg, en hæst ber þar að nefna rannsóknasamstarf, þar sem fræðimenn við HR stunda rannsóknir og skrifa fræðigreinar í samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila.
Einnig er mikið um kennaraskipti, þar sem kennarar HR fara til samstarfsskóla til að kenna um lengri eða skemmri tíma, og einnig koma fjölmargir erlendir fræðimenn til HR til að kenna. Þá eru fastar kynnisferðir nemenda til alþjóðlegra stofnana hluti af náminu í mörgum námsbrautum innan HR.
Öll kennsla fer fram á ensku í 17 námsbrautum
Alls 17 námsbrautir við Háskólann í Reykjavík eru kenndar alfarið á ensku. Þar er meðal annars um að ræða meistaranámsbrautir í verkfræði, viðskiptafræði, tölvunarfræði og lýðheilsu, og frá og með haustinu 2009 verður í fyrsta sinn boðið upp á sérstaka braut í grunnnámi í tölvunarfræði sem kennd verður alfarið á ensku.
Fjöldi erlendra skiptinema
Fjöldi erlendra gestafyrirlesara
Fjölmargir erlendir fræðimenn koma til HR á hverju ári, ýmist í tengslum við rannsóknir starfsmanna eða gagngert til að kenna. Leitast er við að tryggja að nemendur HR njóti góðs af þessum tengslum og eru hinir erlendu gestir almennt fengnir til að halda gestafyrirlestra í einu eða fleiri námskeiðum meðan á dvöl þeirra stendur.
Í mörgum tilfellum er einnig blásið til opinberra fyrirlestra eða málstofa þar sem almenningi og velunnurum HR er boðið að koma .

