HR í hnotskurn - Skapandi umhverfi
Þekkingarþorp í Vatnsmýrinni
Háskólinn í Reykjavík mun á næstu misserum flytja starfsemi sína alfarið í nýbyggingu í Vatnsmýri við rætur Öskjuhlíðar. Á lóð HR verður aðstaða fyrir rannsóknastofnanir og sprotafyrirtæki en markmiðið er að svæði verði kjörlendi nýsköpunar í Reykjavík.
Einstök aðstaða til náms
Nemendur HR hafa aðgang að skólanum 24 tíma á sólarhring alla daga vikunnar. Áhersla er lögð á að bjóða þægileg lesrými og jafnframt hafa nemendur aðgang að þeim kennslustofum sem ekki er verið að nota hverju sinni.
Hátækni rannsóknarstofur
Í nýbyggingu HR við rætur Öskjuhlíðar er lögð mikil áhersla á vel búnar rannsóknastofur sem nýtast munu í verklegri kennslu og við rannsóknir. Fyrst um sinn mun rannsóknaaðstaða vera í kjallara nýbyggingarinnar, en þar eru kjöraðstæður til að geyma viðkvæm rannsóknatæki.
Verkleg kennsla
Verkleg kennsla er mikilvægur þáttur sérstaklega í verkfræði, tæknifræði og tölvunarfræði. Námið í HR er byggt upp þannig að verkleg kennsla sé hluti af stundaskrá, og er kennslumagn áætlað með það í huga að hver nemandi fái þjálfun í verklagi undir handleiðslu kennara í hverri viku.
Raunhæf verkefni
Þjálfun í raunhæfum verkefnum hefur alltaf verið í miklum forgangi í HR. Nemendur í lagadeild, verkfræðideild og viðskiptadeild vinna strax á fyrsta ári að stóru nýsköpunarverkefni þar sem þau þjálfa hagnýta þekkingu og beitingu fræðilegrar þekkingar á raunveruleg viðfangsefni.
195 samstarfssamningar við atvinnulífið
Tengsl við atvinnulíf eru áberandi í HR. Fjölmargir samstarfssamningar eru í gildi við íslensk fyrirtæki og stofnanir og spanna þeir meðal annars starfsnám nemenda, samstarf um lokaverkefni nemenda, fjárhagslegan stuðning við einstök námskeið eða stöður kennara, samstarf við fyrirtæki um rannsóknir og fleira.
Þverfaglegt nám
Nemendur við HR eru hvattir til að ljúka námskeiðum við aðrar deildir en sína eigin. Á árinu 2008 voru kennd um 40 námskeið við HR þar sem meira en 10% nemendanna kom úr annarri deild en námskeiðið var kennt við.
Starfsnám
Starfsnám í einhverju formi er nú í boði í fjórum deildum HR, þ.e. lagadeild, tölvunarfræðideild, kennslufræði- og lýðheilsudeild og tækni- og verkfræðideild. Viðskiptadeild mun bjóða upp á starfsnám frá og með haustinu 2009.
Nýsköpunarnámskeið hluti af grunnnámi
HR leggur mikla áherslu á að útskrifa frumkvöðla sem eru óhræddir við að láta til sín taka í atvinnulífinu. Fjörutíu og sex prósent nemenda sem ljúka grunnnámi við HR hafa lokið að minnsta kosti einu nýsköpunarnámskeiði.
Námsbrautir í takt við þarfir samfélagsins
Starfsmenn Háskólans í Reykjavík fylgjast grannt með þörfum fyrir nýtt nám og er reynt að bregðast við með nýjum námsbrautum. Haustið 2009 mun kennsla hefjast í þremur nýjum námsbrautum, þ.e. sálfræði, evrópufræði og tölvunarfræði á ensku.
Skapandi samstarf við Listaháskóla Íslands
HR og Listaháskóli Íslands hafa um nokkurra ára skeið unnið saman að þverfaglegu námskeiði á sviði vöruhönnunar og markaðssetningar. Í lok námskeiðsins er haldin sýning þar sem nemendur sýna afrakstur vinnu sinnar.
Hvatningarstyrkir
Ýmiss konar styrkir og verðlaun eru veitt nemendum í HR.
Nýnemastyrkur er veittir námsmönnum sem skarað hafa fram úr í menntaskóla eða framhaldsskóla, og þurfa nýnemar að sækja um styrkina, en lágmarkseinkunn til að geta sótt um er 8,0 á stúdentsprófi.
Forsetalistastyrkir eru veittir þeim nemendum sem eru efstir í einkunnum á hverri önn.
Góður nemandi getur lokið grunnnámi við HR án þess að borga nokkurn tíma skólagjöld, með hjálp nýnemastyrkja og forsetalista.
Atvinnuþjónusta
Atvinnuþjónusta HR aðstoðar nemendur við að undirbúa sókn sína á vinnumarkaðinn að loknu námi eða í námshléum. Aðstoðin er í formi námskeiða og einstaklingsráðgjafar, og er lögð áhersla á að útbúa ferilskrá, undirbúa atvinnuviðtöl og nýta tengslanet til að koma sér á framfæri.
Einnig eru haldnar vinnustofur um sérstök áhugasvið mismunandi nemendahópa í skólanum þar sem gjarna eru fengnir fyrirlesarar úr atvinnulífinu.
Stúdentaþjónusta
Í stúdentaþjónustu HR starfa fjórir náms- og starfsráðgjafar og er þeirra hlutverk að hjálpa nemendum að ná góðum árangri í náminu. Veitt er ráðgjöf um tímaskipulag, próftækni, námsvenjur, slökun, persónulega markmiðasetningu, áhugasviðsgreiningu og fleira. Vinnustofur, námskeið og einstaklingsviðtöl eru í boði.
Frumkvöðlasetrið Klakið / Seed Forum Iceland
Klakið er sjálfstætt nýsköpunarhús sem rekið er innan vébanda HR. Í boði er skrifstofuaðstaða fyrir frumkvöðla og ráðgjöf um stofnun og rekstur nýrra fyrirtækja, auk þess sem Klakið stendur fyrir námskeiðum í samstarfi við Opna háskólann í HR, meðal annars undir merkjum Viðskiptasmiðjunnar.
Rannsóknir tengdar atvinnulífi
Fjölmargir vísindamenn við HR stunda rannsóknir sínar í beinu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í íslensku atvinnulífi. Sem dæmi má nefna rannsóknir í tölvunarfræði, steinsteyputækni, frumkvöðlarannsóknir og rannsóknir í mannauðsstjórnun.
Sprotafyrirtæki
Allmörg sprotafyrirtæki hafa á beinan eða óbeinan hátt sprottið upp úr starfi innan HR. Þar má meðal annars nefna fyrirtæki á sviði tölvunarfræði og upplýsingatækni, auk þjónustufyrirtækja sem hafa sprottið upp úr nýsköpunarnámi á vegum HR og MBA náminu.
Sköpun tækifæra
Suðupottur: Fólk, hugmyndir, fjármagn
Fjármögnun HR er þríþætt: Þjónustusamningur við menntamálaráðuneytið stendur undir rúmlega helmingnum af kostnaði HR, skólagjöld skapa um fjórðung af tekjunum og aðrar tekjur, s.s. rannsóknastyrkir og tekjur vegna þjónustu við atvinnulífið, eru afgangurinn.
HR hefur á undanförnum árum náð sífellt betri árangri við öflun rannsóknafjár úr innlendum og erlendum samkeppnissjóðum. Stærsti styrkurinn sem veittur hefur verið til HR er 300 milljóna króna Evrópustyrkur sem veittur var gervigreindarsetri HR á vordögum 2009.
Hugmyndahús háskólanna
Hugmyndahús háskólanna er samstarfsverkefni HR og LHÍ og er eitt af þeim verkefnum sem hrundið var af stað í kjölfar fjármálakreppunnar á Íslandi veturinn 2008-2009. Hugmyndahúsið hóf starfsemi vorið 2009 en þar er vettvangur fyrir frumkvöðla til að vinna að hugmyndum sínum í skapandi umhverfi.

