Bókasafns- og upplýsingafræðingur
Starfið felst í upplýsingaþjónustu, notendafræðslu og kynningum. Menntunar- og hæfniskröfur eru próf í bókasafns- og upplýsingafræði, góð tölvu- og tungumálakunnátta (íslenska og enska), þekking og áhugi á rafrænum upplýsingum (tímaritum og gagnasöfnum). Reynsla af notendafræðslu og/eða annarri kennslu er kostur. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við fólk, sýnir frumkvæði og er sveigjanlegur, skipulagður og sjálfstæður í starfi.
Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 20. ágúst, merktar viðkomandi starfi, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála (asta@ru.is).
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm auk Opna háskólans: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum. Skólinn býður upp á um 750 námskeið á ári, þar af á þriðja hundrað á meistarastigi. Gildi skólans eru metnaður, snerpa, áræðni og heilindi.

