Deildarfulltrúi
Starfið felst í upplýsingagjöf, þjónustu og samskiptum við nemendur og kennara tækni- og verkfræðideildar. Deildarfulltrúi tilheyrir skrifstofu tækni- og verkfræðideildar, og ber ábyrgð á samskiptum við ákveðna hópa nemenda og kennara, en starfar einnig náið með ýmsum stoðdeildum innan HR. Leitað er að einstaklingi með háskólapróf (BA eða BSc), mjög góða tölvukunnáttu, öguð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða og brennandi áhuga á að stuðla að enn betra námsumhverfi í tækni- og verkfræðigreinum innan HR.
Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 20. ágúst, merktar viðkomandi starfi, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála (asta@ru.is).
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm auk Opna háskólans: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum. Skólinn býður upp á um 750 námskeið á ári, þar af á þriðja hundrað á meistarastigi. Gildi skólans eru metnaður, snerpa, áræðni og heilindi.

