Starfið felst í viðgerðum og viðhaldi á rannsóknatækjum, kennslutækjum og öðrum rafeindabúnaði. Starfsvettvangur er annars vegar í tækni- og verkfræðideild, og hins vegar í hinni miðlægu tölvu- og tækniþjónustu skólans. Leitað er að einstaklingi með sveinspróf eða meistarapróf í rafeindavirkjun, haldgóða reynslu af sambærilegum störfum og mikinn áhuga á að læra nýja hluti og veita góða þjónustu í kröfuhörðu og síbreytilegu háskólaumhverfi.
Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 20. ágúst, merktar viðkomandi starfi, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála (asta@ru.is).
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm auk Opna háskólans: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum. Skólinn býður upp á um 750 námskeið á ári, þar af á þriðja hundrað á meistarastigi. Gildi skólans eru metnaður, snerpa, áræðni og heilindi.

